Icesave-frumvarp líklega samþykkt á miðvikudaginn Höskuldur Kári Schram skrifar 28. desember 2009 19:15
Allt bendir til þess að Alþingi samþykki Icesave frumvarp ríkisstjórnarinnar á miðvikudag. Fastlega er búist við því að stjórnarandstaðan muni gera allt sem í hennar valdi stendur til að tefja afgreiðslu málsins. Þriðja og síðasta umræða um Icesave frumvarp ríkisstjórnarinnar hófst á Alþingi í dag en málið var afgreitt úr fjárlaganefnd fyrir jól. Andstaða nokkurra þingmanna Vinstri grænna við málið hefur vakið spurningar hvort ríkisstjórnin hafi meirihluta í málinu. Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Vinstri grænna, hefur enn ekki viljað gefa upp sína afstöðu en hans atkvæði gæti ráðið úrslitum. Ásmundur baðst undan viðtali í dag en sagði í samtali við fréttastofu að allt bendi nú til þess að ríkisstjórnin hafi tryggt sér meirihluta í málinu. Þráinn Bertelsson segist ætla að styðja frumvarpið að óbreyttu. „Ég mun vona það til síðustu stundar að ég sjái eitthvert ljós í myrkrinu sem gerir okkur kleift að hafna þessum samningi en ég væri að skrökva ef ég segðist vera bjartsýnn á það." Ríkisstjórnin vill klára málið fyrir áramót en fastlega er búist við því að stjórnarandstaðan nýti allan þann ræðutíma sem þingsköp gera ráð fyrir. Mun erfiðara er að beita málþófi í þriðju og síðustu umræðu á Alþingi samkvæmt þingsköpum en stjórnandstaðan getur þó talað um málið í allt að 30 klukkustundir og því ólíklegt að icesave frumvarp ríkisstjórnarinnar fari í atkvæðagreiðslu fyrr en á miðvikudag. Þegar Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra er spurð hvort ríkisstjórnin sé búin að tryggja meirihluta í Icesave málinu sagði hún: „Ég vona það. Ég veit ekki hvernig það verður, það verður bara að koma í ljós. Það verður alvarlegt áfall fyrir þessa ríkisstjórn ef hún hefur ekki meirihluta í þessu máli."
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira