Innlent

Stelpuskákmót Olís og Hellis í dag

Í dag fer fram Stelpuskákmót Olís og Taflfélagsins Hellis í höfuðstöðvum Olís, Sundagörðum 2. Þátt taka væntanlega nokkrir tugir stelpna sem kljást um vegleg verðlaun. Mótið er opið fyrir allar stelpur 16 ára og yngri. Samhliða flokknum fer fram sérstakur drottningarflokkur þar sem fimm af sterkustu skákkonum landsins mætast. Mótið hefst klukkan eitt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×