Hafa hugleitt að loka landinu 7. maí 2005 00:01
Nefnd á vegum ríkisstjórnarinnar vinnur að undirbúningi og stýrir samstarfi vegna hættunnar á heimsfaraldri inflúensu. Haraldur Briem sóttvarnalæknir segir þennan hátt hafðan á, því nýr inflúensufaraldur myndi snerta öll svið samfélagsins. Hann segir sóttvarnir þó eftir sem áður á ábyrgð sóttvarnalæknis undir yfirstjórn heilbrigðisráðherra. Nefndinni stýra Davíð Á. Gunnarsson, ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu og formaður framkvæmdastjórnar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) og Þorsteinn Geirsson, ráðuneytisstjóri dómsmálaráðuneytis. Haraldur segir stöðugt unnið að endurskoðun viðbúnaðaráætlunar vegna hættunnar á nýjum flensufaraldri, enda kalli hún á eilífar endurskoðanir í ljósi nýrra upplýsinga, en fylgt verði alþjóðlegum tilmælum WHO um viðbrögð. "Þar er fylgt ákveðnu ferli sem miðast við skilgreind viðbragðsstig," segir hann, en meðal þess sem rætt hefur verið er hvort tími gæti unnist til að "loka landinu" ef upp kæmi nýr flensustofn annars staðar í heiminum. "Almennt er talið að þjóðir heims geti ekki varið sig með þeim hætti í heimsfaraldri inflúensu vegna þess hve smitandi hún er og samgöngur eru hraðar í nútíma samfélagi," segir Haraldur, en bætir við að fræðilega sé þetta þó kostur fyrir eyríki á borð við Ísland, en afar erfitt í framkvæmd. "Hvernig eigum við að bregðast við gagnvart þeim tugum þúsunda Íslendinga sem eru erlendis á hverjum tíma? Þolir landið langvarandi stöðvun á öllum aðföngum frá útlöndum? Þetta er vandamál sem þarf að huga vel að því búast má við að dragi mjög úr ferðamennsku og innflutningi í heimsfaraldri inflúensu. Við þurfum með öðrum orðum að búa okkur undir það með hvaða hætti við bregðumst við þegar inflúensan er komin til landsins," segir hann, en í því felst meðal annars að meta þarf þörf landsins fyrir aðgang að lyfjum sem vitað er að vinna á inflúensu og að tryggja aðgang að þeim. Þegar er hafin hjá lyfjafyrirtækjum þróun á mögulegu bóluefni við nýjum inflúensustofni, en Haraldur hefur ekki trú á að slíkt efni verði til í upphafi heimsfaraldurs. "En vonir standa til að hægt verði að stytta biðtímann frá fjórum til sex 6 mánuðum í um það bil tvo mánuði."
Fréttir Innlent Mest lesið Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Erlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Innlent Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Erlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Fleiri fréttir Kópavogsbúar karpa um Reykjavíkur-Grýluna Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Sjá meira