Innlent

Þyrlan sótti veikan sjómann

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF, og flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SYN, eru rétt í þessu að lenda á Reykjavíkurflugvelli eftir sjúkraflug út á Reykjaneshrygg þar sem veikur spænskur sjómaður var sóttur. Björgunarstjórnstöðin í Madríd hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 10 og tilkynnti að spænski togarinn Eirado do Costal væri með veikan mann um borð sem þyrfti að komast á sjúkrahús. TF-LIF fór í loftið kl. 11:37 og TF-SYN kl. 12:41 en flugvélin fylgdi þyrlunni til öryggis. Vélarnar eru rétt í þessu að lenda á Reykjavíkurflugvelli þar sem sjúkrabíll tekur á móti veika sjómanninum og flytur á sjúkrahús.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×