Íslendingar ferðast meira um eigið land 27. febrúar 2009 12:23 Erna Hauksdóttir framkvæmdastjóri Samtaka Ferðaþjónustunnar
Um þriggja prósenta aukning varð á fjölda gistinótta á Íslandi á milli áranna 2007 og 2008. Mesta aukningin var á Vestfjörðum, gistinóttum fækkaði aftur á móti mest á Vesturlandi. Ferðamönnum frá Afríku og Mið- og Suður-Ameríku fjölgaði hlutfallslega mest. Þetta kemur fram í gistiskýrslu Hagstofunnar fyrir árið 2008. Heildarfjöldi gistinátta var 2,7 milljónir árið 2008, það er 2,7% aukning frá fyrra ári. Gistinætur Íslendinga voru 791.800 og útlendinga 1.924.672. Mest varð aukningin á tjaldsvæðum en minnst á hótelum. Ferðamönnum frá Afríku fjölgaði mest, eða um 60% og aukning ferðamanna frá Mið- og Suður-Ameríku var rúm 36%. Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að þó þessar prósentutölur séu vissulega háar, þá sé ekki um mikla fjölgun á ferðamönnum frá Afríku og Mið- og Suður-Ameríku að ræða, hingað komi ekki margir frá þessum löndum. Fjöldi ferðamanna frá Bandaríkjunum og Evrópu hefur nánast staðið í stað og að sögn Ernu er það fyrst og fremst vegna efnahagsástandsins.Fjölgun Íslendinga á tjaldsvæðum Gistinóttum fjölgaði í flestum landshlutum árið 2008. Aukningin var mest á Vestfjörðum eða 16,4% en höfuðborgarsvæðið stóð nánast í stað. Tæp 42% gistináttanna voru á höfuðborgarsvæðinu eins og verið hefur undanfarin ár. Gistinóttum fækkaði mest á Vesturlandi, eða um 2,8%. Í skýrslunni kemur jafnframt fram að greinilegur munur er á vali Íslendinga og útlendinga á gististöðum og áfangastöðum á ferðalögum. 54,2% gistinátta Íslendinga voru á hótelum og gistiheimilum árið 2008 en 78,8% gistinátta útlendinga. Íslendingum fjölgaði á tjaldsvæðum árið 2008. „Reyndar hefur eru Íslendingar farnir að ferðast miklu meira um landið okkar en verið hefur og ég býst ekki við öðru en að sú þróun muni halda áfram," segir Erna.Mismunandi ferðamynstur eftir þjóðerni Rúmlega helmingur gistinátta útlendinga var á höfuðborgarsvæðinu en töluverður munur er á vali áfangastaða eftir ríkisfangi. Norðurlandabúar velja höfuðborgarsvæðið fram yfir landsbyggðina en aðrir Evrópubúar vörðu hins vegar aðeins 42% gistinátta sinna á höfuðborgarsvæðinu. Aðrar þjóðir dvöldu 63% gistinátta sinna á höfuðborgarsvæðinu. Erna segir töluverðan mun á því á hvað ferðamenn leggja áherslu á þegar þeir koma hingað til lands. „Það er misjafnt eftir hverju fólk er að leita. Til dæmis eru Þjóðverjar og Frakkar duglegir við að fara á fjöll, Bandaríkjamenn sækjast heldur í að vera á höfuðborgarsvæðinu. Norðurlandabúar og Bretar koma talsvert í styttri ferðir og helgarferðir, ekki síst utan háannatímans." Töluverð aukning hefur orðið á heildarfjölda gistinátta síðustu 10 ár. Árið 1998 voru gistinætur 1.540.678 en árið 2008 voru þær 2.716.472. Það er 76,3% aukning. Á þessum tíma hafa gistinætur útlendinga nærri tvöfaldast og gistinóttum Íslendinga fjölgað um 51%.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Fleiri fréttir Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Sjá meira