Íslendingar skilja ekki teppi 6. mars 2007 09:15 Handofið teppi frá pakistan. Svipað þeim teppum sem Tryggvi var að bjóða upp við dræmar undirtektir. „
Að Íslendingar skilji ekki teppi? Nei, þeir gera það nú sennilega ekki. Og svo sem enginn móðgaður yfir því. En þau fóru langt undir matsverði," segir Tryggi Páll Friðriksson í Galleríi Fold. Metaðsókn var á uppboði sem Fold stóð fyrir í Súlnasal Hótels Sögu á sunnudag. Og er Tryggvi Páll mjög ánægður með uppboðið í heild sinni. Metupphæð fékkst fyrir vatnslitaverk eftir Ásgrím Jónsson, eða 8,9 milljónir sem leggur sig á rúmar tíu milljónir með gjöldum. Og málverk eftir Þorvald Skúlason var slegið á 6,5 milljónir. Tryggvi er sæll og glaður með hvernig til tókst og segir þetta staðfesta nokkurn uppgang í listmunasölu hér á landi. En það er þetta með teppin. Á uppboðinu voru boðin upp níu teppi, handofin, og voru þau flest metin í uppboðsskrá á um 400 þúsund. En þau voru slegin langt undir því verði. Fóru á að meðaltali hundrað þúsund krónur. Tryggvi segir ljóst að einhverjir hafi þarna gert afar góð kaup. „Menn voru að gera þarna góð teppakaup. En ég er bara ánægður með að hafa komið þessu út. Okkar hlutverk er að selja þetta." Og uppboðshaldarinn og galleríeigandinn bendir á að ekki sé nema eitt rétt verð og það er markaðsverð hverju sinni. Að sögn Tryggva þykja teppi á borð við þau sem boðin voru upp í Súlnasalnum munaðarvara hvarvetna í víðri veröld. „Það verður að segjast eins og er. Ég hef kynnt mér þetta af áhuga og þá hefur verðið á þessu teppadóti alltaf verið miklu hærra en við höfum getað útvegað okkur þau á hér. Þetta eru ofsalega fínir hlutir. Handofnir. Þetta er flott, þú gengur á þessu endalaust og ekki sést á þessu." Tryggvi fór á kostum á uppboðinu, sagði sögur, brandara og lék við hvurn sinn fingur. Sagði að það tæki eitt ár að gera handofin teppi sem þessi. Og lofaði tvö hundruð ára ábyrgð. „Þetta er óhemju vinna. Ofið í þessum fjallahéruðum, Indlandi og Kína, og fátækt fólk sem vefur þetta. Ákveðnar hefðir og ákveðin mynstur fylgir ættbálkum og tilteknum héruðum. Menn komast ekki áfram með svona teppi nema nokkra sentimetra á dag," segir Tryggvi en sýtir svo sem ekki áhugaleysi uppboðsgesta á teppunum.
Mest lesið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Lífið Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Lífið Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Lífið Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Lífið Tæplega helmingur tilnefndra leikara til Eddunnar erlendur Bíó og sjónvarp Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Lífið Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð Lífið „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið Fleiri fréttir Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Sjá meira