Reykjavíkurborg selur fasteignir fyrir 1,2 milljarða 6. mars 2007 06:45 Stefnt að flutningi í Höfðatorg. Lagt er til í borgarráði að flytja þrjú helstu svið borgarinnar undir eitt þak að Borgartúni 10-12 í Reykjavík og selja fasteignir. Rekstrarfélagið Höfðatorg kaupir fasteignirnar á 1,2 milljarða. Leigan verður tæpar 13 milljónir á mánuði. MYND/GVA
Borgaryfirvöld stefna að því að flytja framkvæmdasvið, skipulags- og byggingasvið og umhverfissvið allt undir eitt þak í Borgartúni 10-12 og selja fasteignirnar í Borgartúni 1, Borgartúni 3, Skúlatúni 2 og Hverfisgötu 14-14a þar sem þessi starfsemi hefur verið til húsa. Samkvæmt drögum að kaupsamningi kaupir rekstrarfélagið Höfðatorg fasteignirnar fjórar fyrir samtals 1.200 milljónir króna. Borgin leigir svo sjö þúsund fermetra húsnæði í Höfðatorgi númer 10-12 við Borgartún á tæpar þrettán milljónir króna á mánuði. Borgartún 1 Ýmsar skrifstofur eru til húsa í Borgartúni 1 en hér var til dæmis áður Vinnumiðlun Reykjavíkur. Eykt byggir húsnæðið sem afhendist 1. október 2007, en Eykt er jafnframt aðaleigandi rekstrarfélagsins Höfðatorgs. Í greinargerð til borgarráðs segir Hrólfur Jónsson, sviðsstjóri framkvæmdasviðs, að húsnæðismál skipulags- og byggingasviðs verði að bæta þar sem verulega þrengi að því við Borgartún 3. Umhverfissvið sé í leiguhúsnæði við Skúlagötu og samningurinn renni út fljótlega. Húsnæðismál framkvæmdasviðs í Skúlatúni 2 séu hins vegar í ágætu lagi. „Verulegt hagræði er að því að koma þessum þremur sviðum fyrir undir sama þaki. Þar að auki hefur verið lagt til að Upplýsinga- og tæknimiðstöð borgarinnar sem nú er til húsa í Borgartúni 1 verði með í nýju húsnæði," segir þar. Borgartún 3 Skipulags- og byggingasvið er til húsa í Borgartúni 3 og þrengir að því. Til greina kemur að símaver í Hafnarstræti verði flutt á sama stað og að Bílastæðasjóður, sem nú er til húsa á Hverfisgötu, verði einnig í sameiginlegu húsnæði. Þá þykir koma til greina að þjónustumiðstöð Miðbæjar og Hlíða flytjist í þetta nýja húsnæði. Skúlatún 2 Húsnæðismál framkvæmdasviðs, sem er til húsa í Skúlatúni 2, eru í ágætu lagi. Tillagan nú liggur fyrir borgarráði þó að fyrir liggi ákvörðun frá árunum 2004 um að flytja starfsemi þessara sviða í Lækjargötu 12. Flutningi í Höfðatorg var þá hafnað. Í greinargerðinni segir Hrólfur að sá kostur komi ekki til greina lengur af ýmsum ástæðum. Hverfisgata 14. Stefnt er að því að selja Hverfisgötu 14 og 14a sem eru bílastæðin á bak við. Bílastæðasjóður er hér til húsa. „Við skipulagsvinnu á lóðinni hefur húsið minnkað nokkuð og er það ekki talið nógu stórt lengur til að hýsa þessi þrjú svið. Enn fremur hafa tillögur um að önnur starfsemi flytjist einnig í sama hús aukið enn frekar húsnæðisþörfina.
Mest lesið Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Innlent Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Innlent Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Innlent „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Innlent Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Erlent Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Innlent Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Innlent Kemur kjarnorkuvetur á eftir kjarnorkuákvæðinu? Innlent „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ Innlent „Það er orrustan um Ísland“ Innlent Fleiri fréttir Tillögur „ekki afhentar í lokuðu umslagi“ Uppþot og fúkyrði á þinginu og bandarískur kjarnorkukafbátur Jökulhlaupið í rénun Reyna að stilla til friðar í bakherbergjum Alþingis Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Fundu tuttugu kíló af grasi eftir húsleit í Hafnarfirði Mennirnir þrír sjáist ekki í myndefni Vara við slysahættu vegna kaldavatnsleysis Vilja herða reglur um frágang rafhlaupahjóla í Reykjavík Segir valkyrjur rangnefni og vill kalla þær skjaldmeyjar Samtal við stjórnarandstöðuna fullreynt Kemur kjarnorkuvetur á eftir kjarnorkuákvæðinu? „Forsætisráðherra veit ekkert hvernig þetta hefur verið!“ „Enginn vafi á að fyrirkomulag Bílastæðasjóðs er löglegt“ Nóróveira líkleg orsök hópsýkingar á Laugarvatni „Það er orrustan um Ísland“ „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Þykir leitt að hafa valdið uppnámi Ávarp forsætisráðherra og kjarnorkukafbátur við Grundartanga Minnihlutinn hafi lagt fram eigið veiðigjaldamál: „Þetta er skrumskæling á lýðræðinu“ Spyr hvort draga eigi valdhafa undir húsvegg og skjóta Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Jökulhlaup úr Mýrdalsjökli í Leirá Syðri og Skálm enn í gangi Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Borgarbúar frekar hlynntir kílómetragjaldi en landsbyggðin Aðilar „einfaldlega ekki tilbúnir að teygja sig nógu langt“ Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Sjá meira