Innlent

Inflúensufaraldur: Annað tilfelli á Íslandi

Sextugur karlmaður á höfuðborgarsvæðinu hefur greinst með inflúensu A (H1N1) og er það annað tilfelli veikinnar sem staðfest er hér á landi. Hann er á batavegi. Fylgst er með fjölskyldu og fleirum sem viðkomandi hefur umgengist eftir heimkomuna en smit hjá öðrum hefur ekki verið staðfest.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá sóttvarnarlækni. Þá segir að maðurinn hafi komið til Íslands frá Bandaríkjunum 3.júní síðastliðinn en veiktist eftir að heim var komið og því var ekkit alið að hann hefði smitað aðra á leið sinni til Íslands. Í framhaldinu var tekið sýni til rannsóknar sem staðfesti greininguna.

„Þetta er í annað sinn sem inflúensa A (H1N1) greinist á Íslandi. Fyrra tilfellið var staðfest 22. maí og þar átti líka í hlut karlmaður sem var að koma frá Bandaríkjunum.

Viðbúnaður hérlendis vegna inflúensufaraldurs er óbreyttur og áfram er unnið að samhæfingu viðbragðsaðila þar að lútandi, meðal annars með svæðisáætlunum sem ræddar eru þessa dagana um allt land á fundum á vegum sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra," segir í tilkynningunni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×