Ekki fleiri arnarhreiður í heila öld 9. júní 2009 19:21 Beðið er í ofvæni eftir unganum.
Þúsundir manna bíða þess nú í ofvæni að hafarnarungi skríði úr eggi sínu í beinni útsendingu frá arnarhreiðri í eyju á Breiðafirði, engir þó spenntari en bóndahjónin sem beittu sér fyrir því að setja upp myndavélina. 44 hafarnarpör urpu hérlendis í vor og hafa hreiðrin ekki verið fleiri síðan árið 1910.Hjónin á Gróustöðum við Gilsfjörð, þau Bergsveinn Reynisson og Signý M. Jónsdóttir, stofnuðu Arnarsetur Íslands í fyrra og eitt fyrsta verkið var að fá leyfi til að setja upp vefmyndavél við arnarhreiður. Útsending hófst fyrir mánuði og hafa allt upp í fimmþúsund manns verið samtímis inni á síðunni að fylgjast með össunni.En nú fer hreiðrið virkilega að verða spennandi því unginn er við það að skríða úr egginu. Ekki er gefið upp hvar hreiðrið er nema að það er í eyju á Breiðafirði. Signý telur enga hættu á að myndavélin trufli örninn og hann hafi ekkert skipt sér af henni.Með framtakinu vonast þau til að draga fleiri ferðamenn í Reykhólasveit enda sé þetta ríki hafarnarins, þarna sé mesta arnabyggð á landinu.Vitað er um 44 arnarhreiður sem orpið var í á landinu í vor, samkvæmt upplýsingum Kristins Hauks Skarphéðinssonar hjá Náttúrufræðistofnun, og hafa þau ekki verið fleiri í heila öld en einu sinni jafnmörg, árið 2004. Ernir verpa enn nær eingöngu á vestanverðu landinu, en útbreiðslusvæðið er nú farið að teygja sig inn á Húnaflóa.Á Gróustöðum eru kanínurnar í hættu en örninn hefur sést taka þær á flugi úr túninu á bænum.
Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Fleiri fréttir Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði Sjá meira