Innlent

Lögregla leitar að breiðleitum þjóf með gisnar tennur

Frá Selfossi. Lögregla leitar að breiðleitum þjóf með breitt bil milli tanna. Lögregla biður þá sem veitt geta upplýsingar um málið að hafa samband í síma 480-1010.
Frá Selfossi. Lögregla leitar að breiðleitum þjóf með breitt bil milli tanna. Lögregla biður þá sem veitt geta upplýsingar um málið að hafa samband í síma 480-1010.
Um klukkan sjö í gærmorgun var tilkynnt um innbrot í Gesthús á Selfossi. Vitni sá til ungs manns koma út úr húsinu og fara í burtu á reiðhjóli. Í ljós kom að búið var að taka nokkuð magn af áfengi sem fannst skömmu síðar falið skammt frá húsinu.

Innbrotsþjófurinn er ófundinn. Hann er talinn vera um tvítugt, 170 sm á hæð, breiðleitur, sennilega burstaklipptur og með gisnar tennur, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu. Maðurinn var í grárri hettupeysu með mynstri og í gallabuxum. Reiðhjólið sem maðurinn fór á var ljósgrátt. Lögregla biður þá sem veitt geta upplýsingar um málið að hafa samband í síma 480-1010.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×