Rannsaka hnífsstunguna sem tilraun til manndráps 6. nóvember 2006 12:00 Eldur logaði í húsinu þegar lögregla kom að og er konan illa haldin af brunasárum, til viðbótar við stungusárin. MYND/Björn Þorláksson
Lögreglan á Húsavík ætlar að krefjast gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir manni, sem stakk konu og karlmann með fjaðurhnífi í heimahúsi á Húsavík í gærkvöldi, og ógnaði lögreglumönnum. Konan liggur á gjörgæsludeild sjúkrahússins á Akureyri og er málið rannsakað sem tilraun til manndráps.Gert var að sárum mannsins, sem árásarmaðurinn stakk, á heilsugæslustöðinni á Húsavík í nótt, en konan var flutt meðvitundarlítil með sjúkrabíl á fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, þar sem hún liggur á gjörgæsludeild, með brunasár á brjósti og innvortis meiðsl eftir hnífinn, en er þó ekki í lífshættu. Neyðarlínunni barst hjálparbeiðni laust eftir klukkan ellefu í gærkvöld.Sigurður Brynjólfsson, yfirlögregluþjónn á Húsavík, segir aðkomuna hafa verið svakalega þar sem eldur hafi verið laus í húsinu en þeir hafi vitað af tveimur slösuðum inni í eldhafinu. Húsið er gjörónýtt en ekki hefur fengist staðfest hvernig eldurinn kviknaði.Íbúar á Húsavík eru slegnir miklum óhug en lögregla segir óreglu hafi verið í húsinu og að lögreglumenn hafi þurft að hafa afskipti af fólki í húsinu fyrr um helgina. Þá sé árásarmaðurinn góðkunningi lögreglunnar.
Mest lesið Aron Can heill á húfi Innlent Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Erlent Ísraelskur ráðherra kynnir áform um þjóðernishreinsun á Gasa Erlent Tekist á um þéttingu byggðar: „Þá getur þú bara flutt til Kaupmannahafnar“ Innlent Hneig niður vegna flogakasts Innlent Hundurinn gerði vart um mann sem stóð og starði inn Innlent Lögreglan leitar tveggja manna Innlent Amgen sver af sér njósnir um starfsfólk Íslenskrar erfðagreiningar Innlent Ólíðandi að fá sektir aftur og aftur Innlent Óánægja með stjórnarandstöðuna eykst hressilega Innlent Fleiri fréttir Minni helst á þjóðarmorð Serba á múslimum í Bosníu Hneig niður vegna flogakasts Tekist á um þéttingu byggðar: „Þá getur þú bara flutt til Kaupmannahafnar“ Lögreglan leitar tveggja manna Frakkar viðurkenna Palestínu og stjórnarandstaðan á Alþingi mælist illa í nýrri könnun Óánægja með stjórnarandstöðuna eykst hressilega Amgen sver af sér njósnir um starfsfólk Íslenskrar erfðagreiningar Hundurinn gerði vart um mann sem stóð og starði inn Hægt nokkuð á virkninni frá því í gærmorgun Aron Can heill á húfi „Sorglega lítið eftir“ þegar sundkappinn var stöðvaður Ljóst að stjórnarandstaðan græddi ekki á „kjarnorkuákvæðinu“ Ólíðandi að fá sektir aftur og aftur Svona vindmyllur vill ráðherra fá samþykktar ofan Gilsfjarðar Tónleikar stöðvaðir vegna veikinda Arons Can Launaði neitun á gistingu með löðrungi Óvinsældir eftir þinglok og meint leyndarmál frönsku forsetahjónanna Innan við þriðjungur andvígur olíuleit Ætlar fyrir Mannréttindadómstólinn og segir fréttaflutning villandi Gasútstreymi minnkandi en gosmóðu enn spáð Vínsalar látnir klára vakt eftir andlát í versluninni Annar stór skartgripaþjófnaður í miðborginni „Ef þú móðgaðist, þykir mér það leitt“ Spellvirkinn líka grunaður um líkamsárás og mansal Staða Sjálfstæðisflokksins versnar eftir þinglok Hóteleigendur vilja byggja á verndarsvæði og ábúendur ekki sáttir Sjálfstæðisflokkur sjaldan mælst minni Þurfti að hætta sundi af öryggisástæðum Gylfi Ægisson er látinn Hundruð kvenna einmana: „Er skrýtið að eiga engar vinkonur?“ Sjá meira