Eiður Smári og Margrét Lára valin 13. desember 2004 00:01
Eiður Smári Guðjohnsen og Margrét Lára Viðarsdóttir voru valin knattspyrnumenn ársins 2004 á samkomu Knattspyrnusambands Íslands sem haldin var í gær. Þetta er í fyrsta sinn sem KSÍ verðlaunar knattspyrnufólk með þessum hætti en yfir 200 einstaklingar víðs vegar úr íslenska knattspyrnuheiminum tóku þátt í kjörinu. Eiður Smári þótt bestur karlanna vegna þess árangurs sem hann hefur náð í einni erfiðustu deild heims í knattspyrnu en næstur honum var valinn Hermann Hreiðarsson. Í þriðja sæti hjá körlunum varð svo Heimir Guðjónsson, fyrirliði FH. "Þetta er mikill heiður enda standa að þessu vali fólk sem annaðhvort er eða hefur komið nálægt knattspyrnu gegnum tíðina," sagði Eiður Smári eftir að valið var kunngert. Hermann Hreiðarsson tók undir orð Eiðs og sagði allar slíkar viðurkenningar af hinu góða fyrir íþróttamenn. "Það skiptir engu máli við hvað viðkomandi starfar eða gerir, allt slíkt er tvímælalaust mikill heiður og af hinu góða." Hjá stúlkunum þótti Margrét Lára hafa staðið sig best eftir frábært tímabil með liði ÍBV og landsliðinu í ár en í öðru og þriðja sæti urðu þær Laufey Ólafsdóttir úr Val, og Olga Færseth hjá ÍBV. Margrét Lára var upp með sér. "Þetta er að sjálfsögðu frábært að hljóta viðurkenningu á borð við þessa og ýtir undir að ég haldi áfram að standa mig eins vel og ég get og án efa ein sú mesta viðurkenning sem ég get fengið ásamt því að vera valin í landsliðið. Fyrir alla þá sem eru reiðubúnir að leggja sig fram í þeim íþróttum sem þeir stunda er svona lagað staðfesting á að það er tekið eftir því sem vel er gert." Á sama tíma færði Knattspyrnusamband Íslands einnig SOS barnaþorpunum styrk að upphæð 500 þúsund krónum en það er í samræmi við stefnu Alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA og munu þeir peningar koma sér vel fyrir munaðarlaus börn í Úkraínu á næstu misserum. albert@frettabladid.is
Íslenski boltinn Mest lesið Caitlin Clark aftur meidd og vandaði dómaranum ekki kveðjurnar Körfubolti Biðin eftir Meistaravöllum styttist um einn dag Fótbolti Sá besti í heimi opnar sig: Þetta er ekki fullnægjandi líf Golf Norskur ólympíumedalíuhafi látinn eftir að eldingu laust í höfuð honum Sport Arnar Grétarsson tekinn við Fylki Fótbolti Eyjakonur gjörsigruðu Gróttu Fótbolti Bradley Beal til Clippers Körfubolti Settur í bann fyrir að hjálpa fátækum krökkum Sport Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Körfubolti Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Handbolti Fleiri fréttir Caitlin Clark aftur meidd og vandaði dómaranum ekki kveðjurnar Biðin eftir Meistaravöllum styttist um einn dag Bradley Beal til Clippers Eyjakonur gjörsigruðu Gróttu Bellingham í aðgerð á öxl og missir af næstu landsleikjum Arnar Grétarsson tekinn við Fylki Grænt ljós á golfmótið þrátt fyrir gos Ítalía í undanúrslit í fyrsta sinn síðan 1997 Þúsund hjólareiðakappar þeysa um hálendið um helgina Grétar kveður Frakkland og fer til Grikklands Eigendur Burnley eignast hitt liðið í Barcelona „Þetta var bara byrjunin“ Hetjudáðir gegn Íslandi tryggðu henni sæti í byrjunarliðinu í kvöld Norskur ólympíumedalíuhafi látinn eftir að eldingu laust í höfuð honum Íslensku strákarnir töpuðu stórt í sextán liða úrslitunum Liverpool reynir líka við Ekitike Vilja hefja golfmótið á morgun: „Látum þetta ekki á okkur fá“ Sjáðu mörkin úr geggjuðum Blikasigri Settur í bann fyrir að hjálpa fátækum krökkum Aukinn áhugi á EM þrátt fyrir samkeppni við FIFA Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Cecilía Rán fékk á sig fastasta skot EM til þessa Stólarnir verða með í Evrópukeppninni í vetur Hefur ekki hugmynd hvar Ólympíugullið hans er niðurkomið „Getum ekki beðið eftir að sjá þig gera kraftaverk“ Meistaramót Golfklúbbs Grindavíkur átti að byrja í dag: „Við hinkrum aðeins“ Sá besti í heimi opnar sig: Þetta er ekki fullnægjandi líf Steven Gerrard orðinn afi Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Dæmdur fyrir að myrða tengdaföður sinn Sjá meira