Innlent

Aka í sólarhring án svefns

Trukkabílstjórar eru farnir að hunsa lög um hvíldartíma eftir að Hæstiréttur komst að því að refsiheimildir skorti. Dæmi eru um að menn hafi verið teknir á þjóðvegum eftir að hafa ekið hátt í sólarhring án þess að fá lögboðna hvíld. Reglur um aksturs- og hvíldartíma flutningabílstjóra voru lögleiddar hérlendis með EES-samningnum. Hæstiréttur sýknaði hins vegar bílstjóra í gær af ákæru um brot á reglunum þar sem refsheimildir væru óskýrar og var það í samræmi við samskonar dóm sem féll síðastliðið haust. Í kjölfar þess dóms hætti Vegagerðin að kæra bílstjóra fyrir brot á reglunum. Stefán Erlendsson, lögfræðingur hjá Vegagerðinni, segir að því sé treyst að allir fari eftir reglunum en því miður hafi eftirlitsmenn orðið varir við brot og dæmi eru um alvarleg brot. Til að mynda þekkist dæmi um að ökumenn stórra vörubíla hafi ekið hátt í sólarhring án þess að fá lögboðna hvíld. Aðspurður segir Stefán vissulega vakna spurningar um umferðaröryggi við þær aðstæður, sem og vinnuaðstæður ökumannanna.  Stefán segir að í samgönguráðuneytinu sé unnið að endurskoðun umferðarlaga þar sem tekið verði á þessu máli.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×