Innlent

Enn hækka stýrivextir Seðlabankans

Seðlabankinn hækkaði stýrivexti um hálft prósentustig í gær. Allar líkur eru því á því að vextir á skammtímalánum, yfidrætti og kreditkortaskuldum hjá bönkunum hækki í kjölfarið. Seðlabankinn hefur nú hækkað vexti úr 5,3 prósentum í 9,5 síðan í maí í fyrra. Sem fyrr eru rökin fyrir hækkuninni sú að hætta sé á að verðbólga verði í hagkerfinu þegar yfirstandandi tímabili stórframvæmda lýkur. Greiningardeild KB banka sagði í hálf fimm fréttum í gær að vaxtahækkunin væri meiri en búist hafi verið við. Það þýðir að allar líkur eru á því að gengi krónunnar styrkist ennþá frekar á mánudaginn en gengið hafði lækkað nokkuð skarpt í aðraganda vaxtaákvörðunarinnar þar sem búist var við minni hækkun. Fram kom í máli Birgis Ísleifs Gunnarssonar, Seðlabankastjóra, í gær að nú sé verðbólga engin ef litið sé framhjá hækkun á húsnæðisverði. Hins vegar sé líklegt að sú hjöðnun á verðbólgu sé tímabundin. "Sennilegt er að verðbólga aukist á ný þegar áhrif gengishækkunar krónunnar frá desember síðastliðnum og breytinga á meðferð vaxtakostnaðar í húsnæðislið vísitölu neysluverðs hafa fjarað út og dregur úr áhrifum óvenjumikillar verðsamkeppni á lágvöruverðsmarkaði," sagði Birgir Ísleifur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×