Innlent

Sprotafyrirtæki við dauðans dyr

Allt að 70 prósent þeirra sprotafyrirtækja, sem annars ættu góða lífsvon, berjast í bökkum við núverandi efnahagsástand og mörg þeirra eru við dauðans dyr. Þetta er mat Davíðs Lúðvíkssonar, forstöðumanns Samtaka sprotafyrirtækja. "Sprotafyrirtækin eru yfirleitt að nota meginhlutann af sínu fjármagni í þróunarstarf og eru oft fjárvana þannig að þau hafa varla borð fyrir báru. Flestir ættu að deyja við núverandi aðstæður en það ótrúlega er að einhver þessara fyrirtækja lifa. Hjá þeim sem lifa af er afleiðingin sú að þróunin verður hægari," segir hann. Mikið innstreymi er af gjaldeyri sem skipta þarf fyrir íslenskar krónur og spennir það upp verðið á íslensku krónunni, að sögn Davíðs. Þá er íslenska krónan hluti af litlu hagkerfi og því hefur svo mikið innstreymi af gjaldeyri þeim mun meiri áhrif en í stærra hagkerfi. "Ef evran veiktist þá myndi kostnaðarhliðin lækka en það gerist ekki við þessar aðstæður þegar kostnaðurinn er bundinn í íslenskri krónu en tekjurnar í erlendri mynt," segir hann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×