Barnsmóðirin til bjargar Jackson? 29. apríl 2005 00:01
Vonir saksóknara í Kaliforníu um að sýna fram á að Michael Jackson væri barnaníðingur veiktust heldur þegar barnsmóðir söngvarans var kölluð í vitnastúkuna. Debbie Rowe, sem er eitt af lykilvitnum saksóknara, lýsti Jackson sem góðum föður sem elskar börn. Lagaspekingar vestan hafs telja að Debbie Rowe, fyrrverandi eiginkona og barnsmóðir Michaels Jacksons, sé ef til vill það besta sem komið gat fyrir vörnina í málinu gegn honum þótt hún sé eitt lykilvitni saksóknara í málinu. Rowe starfaði sem hjúkrunarfræðingur fyrir lækni Jacksons þegar hún giftist honum árið 1996 en þau eignuðust tvö börn saman sem eru 9 og 7 ára í dag. Rowe lýsti honum fyrir dómi sem einstökum föður sem væri yndislegur við börn og hún sagði hann vera fórnarlamb tækifærisinnaðra manna úr innsta hring hans, sem vildu græða milljónir á vandræðum hans. Rowe lýsti Jackson sem hinu raunverulega fórnarlambi í málinu. Þetta var annar dagurinn í röð sem hún ber vitni í málinu. Saksóknarar höfðu gert sér vonir um að framburður Rowe myndi styrkja málið gegn Jackson og sýna fram á að hann væri barnaníðingur en þær vonir þykja hafa veikst nokkuð. Andrew Coen lögfræðingur segist aldrei hafa séð saksóknara í jafnmiklum erfiðleikum með vitni sín og aldrei orðið vitni að eins mörgum óvæntum atvikum í málaferlum.
Menning Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Sjá meira