Ellie Goulding er efnilegust 9. janúar 2010 04:15 Ellie Goulding er líklegust til að slá í gegn á þessu ári samkvæmt nýjum lista BBC. nordicphotos/getty
Söngkonan Ellie Goulding er líklegust til að slá í gegn á þessu ári samkvæmt árlegum lista breska ríkisútvarpsins, BBC. Goulding, sem er 22 ára, blandar saman órafmagnaðri þjóðlagatónlist og nútímapoppi með áhugaverðum árangri og þykir hún eiga framtíðina fyrir sér í tónlistarbransanum. Á meðal fyrri sigurvegara hjá BBC eru Little Boots, Adele, Mika, Corinne Bailey Rae, Keane og rapparinn 50 Cent. Það voru 165 tónlistargagnrýnendur, sjónvarpsmenn og bloggarar sem kusu Goulding í efsta sætið. Í næstu sætum á eftir komu Marina and the Diamonds, Delphic, Hurts og The Drums. Goulding var uppgötvuð í hæfileikakeppni í heimabæ sínum Kington í Herefordskíri. Þegar hún stundaði leiklistarnám við háskólann í Canterbury kynntist hún upptökustjórunum Frankmusik og Starsmith sem sérhæfa sig í danstónlist og í framhaldinu vakti hún töluverða athygli á Myspace. Goulding, sem fékk nýlega gagnrýnendaverðlaun á Brit-hátíðinni, segir það mikinn heiður að hafa verið valin efnilegust hjá BBC. „Ég átti ekki von á því að komast neitt áleiðis fyrir nokkrum árum,“ sagði hún. „Ég bjóst ekki einu sinni við því að fá plötusamning, hvað þá að vinna svona flottan titil, þannig að ég er mjög ánægð. Mér finnst listinn sem var tilkynntur í ár virkilega flottur og ég hef mikla trú á mörgum þeirra sem eru á honum.“
Mest lesið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun Einar og Milla eiga von á dreng Lífið Fleiri fréttir Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Sjá meira