Vextir vegna Icesave byggja á kostnaði viðsemjendanna 9. janúar 2010 06:00 Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra á blaðamannafundi sem haldinn var í desemberbyrjun og fjallaði um skilmála vegna Icesave. Fréttablaðið/GVA
Vextir þeir sem íslenska ríkinu standa til boða í samningum við Breta og Hollendinga vegna Icesave-skuldbindinga ríkisins byggja að mestu á fjármagnskostnaði landanna. Þetta kom fram í símaviðtali sem Íslensk-ameríska viðskiptaráðið skipulagði við Gylfa Magnússon viðskiptaráðherra á fimmtudag. Í umræðu um Icesave-samninga ríkisins hefur því stundum verið haldið fram að vextir þeir sem Íslendingar þurfi að greiða séu fram úr hófi háir miðað við þá vexti sem almennt sé miðað við í alþjóðaviðskiptum um þessar mundir. Gert er ráð fyrir að íslenska ríkið greiði 5,55 prósenta vexti af lánum Breta og Hollendinga, sem þegar hafa greitt innstæðueigendum í löndum sínum inneignir tengdar Icesave. Vaxtakjörin eru þau sömu í báðum samningum sem gerðir hafa verið við löndin, en lög þau sem Alþingi samþykkti í ágúst taka til fyrri samningsins, og þau lög sem nú bíða þjóðaratkvæðagreiðslu taka til seinni samningsins. Vaxtakjörin sagði Gylfi að byggðu á útreikningi vaxtakjara á skuldabréfum Breta og Hollendinga til tíu ára, eða langtímavaxtakjörum þeim sem ríkjunum standa til boða, að viðbættu lágu álagi. „Þá ætti að hafa í huga að þetta eru hámarksvextir sem ríkið kann að þurfa að borga, því landið hefur á hverjum tíma rétt til að greiða upp lánið að fullu ef hagstæðari fjármögnun fengist annars staðar.“ Gylfi var á símafundinum líka spurður út í væntar heimtur af eignum Landsbankans, kostnað ríkisins og vaxtakjör í samningum vegna Icesave. „Grunnupphæðir eru vel þekktar,“ sagði hann og rakti hvernig Bretar hefðu á annan veginn lagt út um 2,3 milljarða breskra punda og Hollendingar 1,3 milljarða evra hins vegar. Heildarupphæðin nemi um fjórum milljörðum evra. Síðan ráðist af heimtum verðmæta úr Landsbankanum hversu stór hluti falli á íslenska ríkið, en við þá upphæð bætast svo vextirnir vegna lána Breta og Hollendinga. Verstu spár segir hann gera ráð fyrir 75 prósenta heimtum verðmæta, en þá myndu alls um tveir milljarðar evra falla á ríkið, helmingurinn vextir. „En það er byggt á mjög varlegu fyrsta mati skilanefndar bankans. Raunhæfara er að endurheimtur eigna nemi 90 prósentum hið minnsta.“ olikr@frettabladid.is
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Fleiri fréttir Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Sjá meira