Sársaukafullt fyrir sjávarútveginn 6. júlí 2007 13:12 Friðrik Jón Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna. MYND/PJ
Samdráttur á aflaheimildum í þorski um 63 þúsund tonn fyrir næsta fiskveiðiár á eftir að verða mjög sársaukafullt fyrir sjávarútveginn að mati framkvæmdastjóra Landssambands íslenskra útvegsmanna. Hann undrast að ríkisstjórnin skuli einungis taka mið af tillögum Hafrannsóknarstofnunar í ákvörðun sinni. „Þetta er of mikill samdráttur á aflaheimildum í þorski," sagði Friðrik Jón Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, í samtali við Vísi. „Að okkar mati hefði verið eðlilegra að fara hægar í sakarnir. Þetta verður of sársaukafullt fyrir greinina." Ríkisstjórnin kynnti í morgun tillögur sínar um heildarafla á komandi fiskveiðiári. Samkvæmt þeim minnkar aflaheimild í þorski um 63 þúsund tonn, úr 193 þúsund tonnum í 130 þúsund. Er það í fullu samræmi við tillögur Hafrannsóknarstofnunar. Áður höfðu útvegsmenn hins vegar lagt til að að kvótinn yrði ákvarðaður í kringum 155 til 160 þúsund tonn. Samhliða kynnti ríkisstjórnin einnig mótvægisaðgerðir sem hafa það að markmiði að draga úr áhrifum ákvarðarinnar á sjávarbyggðir. Friðrik segir það koma óvart að ríkisstjórnin skuli að öllu leyti fara eftir tillögum Hafrannsóknarstofnunar. „Hafrannsóknarstofnun er einungis álitsgjafi. Þetta á að vera ákvörðun stjórnvalda og það ætti að horfa á fleiri atriði. Við erum sammála því að það þurfi að byggja upp stofninn. Hins vegar er þetta spurning um það hvernig þau skref eru tekin og tryggt að þau skaði ekki atvinnugreinina." Þá segir Friðrik stjórnvöld ekki koma nægjanlega til móts við útgerðarmenn í mótvægisaðgerðum sínum.„Stærsta málið er hágengisstefna Seðlabankans. Hún er stórskaðleg og við hefðum viljað sjá að mótvægisaðgerðirnar snertu á því máli. Seðlabankinn virðist ekki nokkrum tengslum við það sem er að gerast."
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent Baldur til Eyja Innlent Fleiri fréttir „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Sjá meira