Segir Lyfjastofnun verða af tekjum vegna takmarkana fjárlaga Ingvar haraldsson skrifar 30. júlí 2014 12:00 Forsvarsmenn Lyfjastofnunar eru óánægðir með það fé sem stofnuninni hefur verið skammtað. vísir/gva
Rannveig Gunnarsdóttir, forstjóri Lyfjastofnunar, er óánægð með að stofnunin fái ekki að nýta það fé sem hún aflar sjálf. Tekjur Lyfjastofnunar hafa verið talsvert umfram það fé sem henni er skammtað af fjárlögum undanfarin ár. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir að sýna þurfi fram á að aukin umsvif Lyfjastofnunar skili sér í auknum tekjum. „Það er álitamál hvort aukin rekstrarumsvif muni á endanum skila sér í auknum sértekjum. Til þess að ríkið sitji ekki uppi með aukin umsvif og engar tekjur þurfa að liggja fyrir trúverðugar áætlanir í samstarfi við velferðarráðuneytið og á það hefur skort,“ segir Bjarni. Rannveig fullyrðir að Lyfjastofnun hafi orðið af tekjum frá fyrirtækjum vegna valkvæðra verkefna sem hefðu þýtt að stofnunin færi fram úr fjárlögum. „Við erum í samkeppni við aðrar lyfjastofnanir á Evrópska efnahagssvæðinu um vísindaráðgjöf fyrir Lyfjastofnun Evrópu sem við fáum greitt fyrir. Ef verkefnið er ekki unnið á Íslandi tekur lyfjastofnun annars EES-lands að sér matið og fær greitt fyrir.“Rannveig Gunnarsdóttir, forstjóri Lyfjastofnunar.Rannveig segir erfitt að ákveða nákvæm fjárlög fyrir stofnunina. „Föst fjárlög henta ekki okkar rekstri. Við vitum ekki fyrir fram hvaða verkefni við fáum. Við höfum ekki val um hvort við sinnum stórum hluta okkar verkefna. Þau verkefni eru oft afgreidd seinna en við vildum.“ Þórhallur Hákonarson, fjármálastjóri Lyfjastofnunar, ritar í nýútkominni ársskýrslu stofnunarinnar að uppi sé „alvarleg staða sem hamlar framþróun stofnunarinnar og getur haft áhrif á lyfjaframboð, auk þess að takmarka þjónustu við lyfjaiðnaðinn í landinu“. Rannveig tekur undir þessi orð. „Þetta eru verkefni sem veita sérfræðingum störf og skapa verðmæti. Það er hins vegar enginn hvati fyrir okkur að sækjast eftir verkefnum umfram fjárlög,“ segir Rannveig. Þar að auki bendir Rannveig á að ekki sé búið að fjármagna málaflokkinn lækningatæki, sem Lyfjastofnun tók við í maí 2011. „Þar eru fyrirtæki sem vilja og þurfa þjónustu. Sú þjónusta hefur hins vegar verið í algjöru lágmarki,“ segir Rannveig.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira