Slydda, él og hálka í Reykjavík Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 2. október 2015 23:32 Ökumenn, þeir sem eru á ferð í nótt og snemma í fyrramálið, eru beðnir um að hafa hugfast að lúmskir hálkublettir geta myndast.
Þeir sem hafa verið á ferð um Reykjavíkurborg undanfarinn klukkutímann eða svo hafa ekki farið varhluta af því að gengið hefur á með éljaveðri og slyddu. Í Ártúnsbrekkunni náði að festa snjó. Teitur Arason er vaktarveðurfræðingur á Veðurstofu Íslands og hann segir þetta passa. Það sé frekar kalt loft yfir landinu og óstöðugt og þá gengur á með skúra-élja-veðri. „Það eru kjöraðstæður fyrir slíkt; hægur vindur og skúraveður og ekki hjálpar ekki til að það geislar út hitinn frá yfirborðinu. Ekki er nóg með að það myndast hálka þar sem kemur hvít úrkoma heldur er það svo að fyrr í kvöld komu skúrir niður og voru blautir vegir. Með kólnun gætu myndast lúmskir hálkublettir.“ Teitur segir að þetta komi oft á þessum árstíma, þegar það er hægur vindur og skammdegið sé komið, þá getur hálka látið á sér kræla. Þetta þýði einfaldlega að haustið er komið. „Þetta er aðallega í nótt og í fyrramálið. Hálka, en svo breytist þetta annað kvöld en þá fer að blása af suðaustri og hlýrra loft kemur yfir landið. Á sunnudag breytist þetta í það sem oftast er kallað rok og rigning; suðaustan hvassviðri og rigning á sunnudaginn. Þá er allavega hálkan úr sögunni í bili,“ segir Teitur.
Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Fleiri fréttir „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Sjá meira