Lífið

Ég fer aldrei í megrun

MYND / COVER MEDIA
Breska leikkonan Amanda Holden er ávallt í sviðsljósinu í heimalandi sínu en er alveg sama þó gula pressan velti sér upp úr holdafari hennar.

Þessi 41 árs stjarna fæddi dótturina Hollie fyrir átta mánuðum og segir að grannur vöxtur sinn sé genum að þakka.

"Öllum finnst ég vera mjó og ég er ekki feit en mér er sama þó ég bæti á mig," segir Amanda. Hún er algjörlega á móti því að fara í megrun.

"Ég fer aldrei í megrun en ég held að mataræði mitt sé heilsusamlegt. Ég elska að fara út að hlaupa því það er eini klukkutími dagsins sem ég fæ út af fyrir mig en ég hef ekkert farið út að hlaupa síðan ég átti Hollie. Ég elska kökur og vín!"






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.