Samsæriskenningar hjá Ítölum 21. júní 2004 00:01
Taugatitringur er farinn að gera vart við sig fyrir lokaleiki C-riðils sem fram fara í kvöld. Þá mætast annars vegar Danir og Svíar og hins vegar Ítalir og Búlgarar. Ítalir eru nánast farnir að örvænta fyrir fram en hráki Tottis og fjölmiðlafýla Vieri hafa ekki létt á þeim brúnina og nú er farinn að heyrast orðrómur - samsæriskenning. Skoðum málið.Danir og Svíar hafa brugðist ókvæða við þeim orðrómi að þeir hafi gert með sér samkomulag fyrir leik liðanna í kvöld. Samkomulagið á að ganga út á það að liðin skilji jöfn, 2-2, og komist þannig bæði áfram úr riðlinum á kostnað Ítala, takist þeim á annað borð að leggja Búlgara að velli. Fari 2-2 í leik liðanna skiptir engu máli þótt Ítalir bursti Búlgara þar sem mörk í innbyrðisviðureignum liðanna gilda og þau eru Dönum og Svíum í hag."Þetta er algjörlega fáránlegt," sagði þjálfari Dana, Morten Olsen, aðspurður um þessa samsæriskenningu: "Hverjir haldið þið að við séum eiginlega? Haldið þið að við séum ekki heiðarlegir og sannir íþróttamenn? Ég vil ekki heyra meira minnst á þetta kjaftæði. Við munum að sjálfsögðu stefna á sigur í leiknum - við munum ekki gera þetta á neinn ítalskan hátt!," sagði reiður Morten Olsen. Annar þjálfari Svía, Tommy Söderberg, var ekki heldur sáttur við þennan samsæriskvitt: "Við segjum það enn og aftur, við munum ekki gera neitt samkomulag við Dani. Fótbolti snýst um ástríðu og virðuleika - að spila góðan leik og vera stoltur af því," sagði Söderberg.
Íslenski boltinn Mest lesið Carragher sagði „heiladauðan“ Hannibal hafa kostað Burnley stig Enski boltinn Sló heimsmetið í fjórtánda sinn Sport Beit andstæðing á HM Sport „Ef félagið vill breyta um leikstíl verður það að breyta um mann“ Enski boltinn Keane tók Shaw á teppið: „Gafst upp og alltaf meiddur“ Enski boltinn Leik hætt eftir að leikmaður hné niður Fótbolti Sjáðu mörkin úr mettapi KR Íslenski boltinn „United er að keppa við hina Ferrari-bílana en með Skoda-vél“ Enski boltinn Sjáðu City salta United og ískaldan Salah á vítapunktinum Enski boltinn City rak barþjón sem mætti í United-treyju í vinnuna Enski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: ÍA - Afturelding | Botnliðin eigast við Verður væntanlega ráðinn 89 dögum eftir að hann var rekinn City rak barþjón sem mætti í United-treyju í vinnuna Sló heimsmetið í fjórtánda sinn „United er að keppa við hina Ferrari-bílana en með Skoda-vél“ Krísa í Kansas Sigur færir Eyjamönnum sæti í efri hlutanum Arnór framlengir til 2028: „Vil sjá hversu langt við getum farið“ Vann maraþonið með 0,003 sekúndna mun Leik hætt eftir að leikmaður hné niður Beit andstæðing á HM „Ef félagið vill breyta um leikstíl verður það að breyta um mann“ Sjáðu mörkin úr mettapi KR Carragher sagði „heiladauðan“ Hannibal hafa kostað Burnley stig Keane tók Shaw á teppið: „Gafst upp og alltaf meiddur“ „Arteta hefur aldrei verið með jafn góðan hóp og núna“ Sjáðu City salta United og ískaldan Salah á vítapunktinum Dagskráin í dag: Mikilvægir leikir í lokaumferðinni Skoraði hundraðasta markið eftir 637 daga fjarveru Þurftu að aflýsa síðasta leggnum vegna mótmæla Uppgjör: Valur - Stjarnan 1-2 | Stjarnan mætt af fullum þunga í titilbaráttuna Glódís langbest Íslendinga í nýja leiknum Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn „Hrikalega sáttur með þetta“ „Ég verð að horfa í spegilinn eftir svona frammistöðu“ Börsungar fóru illa með Valencia Hildur lagði upp í Madrídarslagnum „Búnir að æfa það að setja Sigurjón upp í senterinn“ Daníel Tristan skoraði tvö og benti á Guðjohnsen-nafnið Uppgjörið: KA - Vestri 4-1 | Frábær sigur dugði ekki til Sjá meira