Ekki í herferð gegn einkabílnum BBI skrifar 26. júlí 2012 16:11 "Við erum með einhver ódýrustu bílastæði í hinum vestræna heimi,“ segir Karl Sigurðsson.
Aðspurður segir Karl Sigurðsson, formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar, að Besti flokkurinn sé ekki í herferð gegn einkabílnum. Borgarráð samþykkti í morgun umtalsverða hækkun á stöðumælagjöldum í Reykjavík frá og með næsta mánudegi. „Við erum í herferð sem snýr að því að leiðrétta jafnvægi milli samgöngumáta í borginni," segir hann og vill meina að jafnvægið hafi hallað á gangandi vegfarendur og hjólandi. Undanfarið hefur borgarstjórn reynt að gera þeim samgöngumátum hærra undir höfði, m.a. með því að gera neðri hluta Laugarvegs að göngugötu. Karl telur að þegar allt kemur til alls verði borgarbúar ánægðir með hækkanirnar þar sem auðveldara verður að fá stæði í miðbænum. „Flæði bifreiða í bílastæðum í miðborginni er of mikið. Mettunin er slík að það er talað um 90-110% nýtingu stæða, fólk að leggja uppá gangstéttir," segir hann og útskýrir að ásættanlegt væri ef 85% stæðanna væru almennt í notkun. Með gjaldhækkununum er meiningin að draga úr fjölda bifreiða í borginni. Karl minnir aftur á að þrátt fyrir að hækkanirnar séu töluverðar í prósentum hækki krónutalan ekki mikið. „Við erum með einhver ódýrustu bílastæði í hinum vestræna heimi," segir hann. Karl er sannfærður um að þrátt fyrir veðráttuna á landinu og hæðótt landslag í borginni geti fólk auðveldlega ferðast á hjóli eða strætisvögnum. „Okkar meirihluti er að reyna að ýta undir þann ferðamáta. Nú erum við t.d. búin að gera samning við ríkið um árlegt framlag upp á tæpan milljarð króna fyrir Strætó," segir hann. Hann minnir einnig á að gjöld hafi ekki hækkað í bílastæðahúsum og vill beina umferðinni þangað. „Það er fullt af þeim í borginni og þau eru illa nýtt," segir hann.
Tengdar fréttir Verulegar hækkanir á bílastæðagjöldum Verulegar hækkanir verða á bílastæðagjöldum á þremur gjaldsvæðum í Reykjavíkurborg í næstu viku. Gjaldsvæði 1 mun kosta 225 krónur í stað 150 krónur. Gjaldsvæði 2 og 4 mun fara úr 80 krónum í 120 krónur. Um er að ræða skammtímasvæði sem eru miðsvæðis. Hækkunin gildir frá og með mánudeginum 30. júlí. Engin hækkun verður á gjaldsvæði 3, sem er ætlað sem langtímastæði, en á því svæði er m.a. hægt að kaupa miða á u.þ.b. 1.900 krónur sem gildir í tvær vikur. 26. júlí 2012 15:20 Mest lesið Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Erlent Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Innlent Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Erlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Fleiri fréttir Konur í Framsókn sjá að sér Stjórnin treystir Margréti Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Skila af sér breyttri Reykjavíkurleið í febrúar Framsóknarmenn takast hart á að tjaldabaki Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Saka stjórnina um „óskhyggju, afneitun og ímyndaðan veruleika“ Grautfúl Kristrún og Vetrarhátíð hefst í kvöld Tíu tilkynnt um veikindi eftir að hafa borðað mat frá Vitatorgi Afturkalla endurvigtunarleyfi Brims vegna „stórfellds gáleysis“ Fimm prósent atvinnuleysi í lok árs 2025 Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Sjá meira
Verulegar hækkanir á bílastæðagjöldum Verulegar hækkanir verða á bílastæðagjöldum á þremur gjaldsvæðum í Reykjavíkurborg í næstu viku. Gjaldsvæði 1 mun kosta 225 krónur í stað 150 krónur. Gjaldsvæði 2 og 4 mun fara úr 80 krónum í 120 krónur. Um er að ræða skammtímasvæði sem eru miðsvæðis. Hækkunin gildir frá og með mánudeginum 30. júlí. Engin hækkun verður á gjaldsvæði 3, sem er ætlað sem langtímastæði, en á því svæði er m.a. hægt að kaupa miða á u.þ.b. 1.900 krónur sem gildir í tvær vikur. 26. júlí 2012 15:20