Skapa á norrænt velferðarsamfélag 11. maí 2009 02:00
Ný ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur ætlar að leiða til öndvegis ný gildi jöfnuðar, félagslegs réttlætis, samhjálpar, sjálfbærrar þróunar, kvenfrelsis, siðbótar og lýðræðis. Hún ætlar að skapa norrænt velferðarsamfélag þar sem almannahagsmunir eru teknir fram yfir sérhagsmuni. Byrðum vegna ástands efnahagsmála segist stjórnin ætla að dreifa með sanngirni, jöfnuð og réttlæti að leiðarljósi. Fyrstu kaflar sautján blaðsíðna samstarfsyfirlýsingar ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og VG fjallar um efnahagsmál, ríkisfjármál og vanda fólks og fyrirtækja. Tiltekið er að ástandið kunni að versna enn frekar áður en það batnar aftur og áhersla lögð á að samfélagið allt þurfi að vinna saman að lausn vandans. Allir þurfi að leggja sitt af mörkum, í réttu hlutfalli við getu. Peningastefnan metinMeginverkefni ríkisstjórnarinnar á sviði efnahagsmála er að ná aftur jafnvægi í rekstri ríkissjóðs, endurreisa fjármálakerfið, ná þjóðarsátt um lykilmarkmið og viðamiklar efnahagsráðstafanir og sátt við nágrannalönd eftir hrun fjármálakerfisins. Trúverðug efnahagsáætlun og stefnumörkun í ríkisfjármálum til fjögurra ára eru sagðir hornsteinar efnahagsstefnunnar. Peningastefnunefnd Seðlabankans verður falið að fara yfir kosti og galla þess að breyta peningastefnunni og meta kostina í gjaldmiðilsmálum og Seðlabankinn á að meta hvernig best verði dregið úr vægi verðtryggingarinnar. Ríkisstjórnin hefur það að markmiði að koma í veg fyrir að tímabundinn greiðsluvandi leiði til vanskila og gjaldþrots og ætlar í því skyni að hækka vaxta- og húsaleigubætur. Lykilatriðið er að tryggja húsnæðisöryggi. Í stjórnarsáttmálanum segir að ríkisstjórnin ætli að kanna kosti til aukinnar tekjuöflunar ríkissjóðs í samráði við hagsmunaaðila og með hliðsjón af reynslu þeirra landa sem glímt hafa við svipaða erfiðleika. Lykilatriði er að aukin skattheimta leggist frekar á þá sem betur eru í stakk búnir til að bera auknar byrðar en verði þó ekki til þess að draga úr möguleikum fólks til að vinna sig út úr þeim erfiðleikum sem fram undan eru. Kynna á áætlun um jafnvægi í ríkisfjármálum í sumarbyrjun. Laun lækkuð og afnuminRíkisstjórnin ætlar, í sparnaðaraðgerðum sínum, að efna til víðtæks sparnaðarátaks í ríkiskerfinu öllu og gæta ítrasta aðhalds í rekstri. Lækka á eða afleggja þóknanir fyrir nefndir, hömlur verða settar á aðkeypta ráðgjafarþjónustu og engin ríkislaun eiga að vera hærri en laun forsætisráðherra. Það felur í sér launalækkun í stofnunum og fyrirtækjum á borð við Ríkisútvarpið ohf. og Íbúðalánasjóð. Heilbrigðisþjónustan verður tekin til endurskoðunar með það að markmiði að draga úr kostnaði og nýta fé skynsamlega. Tíu liða áætlun um átak til atvinnusköpunar er að finna í stjórnarsáttmálanum og tólf liða áætlun um sóknarstefnu til framtíðar. Kvótinn innkallaðurÁ kjörtímabilinu á að leggja grunn að innköllun og endurráðstöfun aflaheimilda á 20 ára tímabili og er stefnt að því að innköllun og endurráðstöfun taki gildi á næsta ári. Styrkja á stöðu umhverfisverndar innan stjórnarráðsins og kannaður verður grundvöllur þess að leggja á umhverfisgjöld tengd ferðaþjónustu. Þá á að stuðla að gagnsæi í orkusölusamningum og leita leiða til að aflétta leynd af orkuverði til erlendra stóriðjufyrirtækja. Stjórnin vill stjórnlagaþingÍtarlega er fjallað um lýðræði og mannréttindi í stjórnarsáttmálanum og meðal annars um skipan stjórnlagaþings. Frumvarp um það verður lagt fram á vorþingi sem sett verður á föstudag. Þá verður líka lagt fram frumvarp um persónukjör auk þess sem kosningalögin verða endurskoðuð með það að markmiði að jafna vægi atkvæða. Lög um skipan dómara verða einnig endurskoðuð. Í stjórnarsáttmálanum er lögð áhersla á sjálfstæða utanríkisstefnu Íslands og kveðið á um endurskoðun á starfsemi Varnarmálastofnunar.
Mest lesið „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Innlent Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Fleiri fréttir Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Sjá meira