Umferðarljósum stolið í annað sinn 11. maí 2009 14:36
Bíræfnir þjófar stálu um miðja síðustu viku tveimur umferðarljósum af gatnamótum Sæbrautar og Holtavegar. Ljósahausarnir sem stolið var eru nokkru minni en hefðbundin ljós og voru þeir festir á miðja staura vestanmegin gatnamóta fyrir umferð frá Holtavegi. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að búið sé að kæra þjófnaðinn til lögreglu og eru þeir sem hafa ábendingar beðnir um að láta lögreglu vita. Þetta er í annað sinn sem ljósum á þessum stað er stolið, en öðrum hausnum var stolið í nóvember síðastliðnum, en hinn losaður. Ljósunum var þá skilað og urðu engir eftirmálar. Dagbjartur Sigurbrandsson, verkefnissstjóri, segir að í kjölfarið hafi verið gengið betur frá festingum, en það hafi því miður ekki dugað til, því nú voru ljósin brotin af. Þessi nýja tegund ljósa var sett upp síðastliðið sumar þegar breytingar voru gerðar á ljósabúnaði gatnamótanna. „Vonast er til að ljósahausarnir skili sér og mögulegt verði að setja þá upp að nýju. Ný ljós kosta líklega um hálfa milljón króna, en þau þarf að sérpanta og getur því liðið einhver tími þar til hægt verður að laga ljósin," segir í tilkynningu frá borginni. Þá segir að ljósin sem eru efst á staurnum virki enn og eru þau á sömu stillingu og ljósin sem tekin voru. „Ökumenn bíla sem stöðva við gatnamótin eiga erfiðara með að fylgjast með ljósunum, sem er bagalegt því á þessum gatnamótum er umferðin þung. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát meðan þetta ástand varir."
Tengdar fréttir Umferðaljósaþjófur iðraðist gjörða sinna „Sorry – sé mjög eftir þessu” voru skilaboðin á pakka sem reyndist innihalda umferðarljós sem stolið var af gatnamótum Sæbrautar og Holtavegar fyrir viku síðan. 19. nóvember 2008 11:03 Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Fleiri fréttir Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Sjá meira
Umferðaljósaþjófur iðraðist gjörða sinna „Sorry – sé mjög eftir þessu” voru skilaboðin á pakka sem reyndist innihalda umferðarljós sem stolið var af gatnamótum Sæbrautar og Holtavegar fyrir viku síðan. 19. nóvember 2008 11:03