Innlent

Vernda vistkerfið með banni

Gul svæði: Nýjar lokanir. Græn svæði: Eldri lokanir. Rauð lína: úthafið á samningssvæði NEAFC.
Gul svæði: Nýjar lokanir. Græn svæði: Eldri lokanir. Rauð lína: úthafið á samningssvæði NEAFC.

Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndin (NEAFC) samþykkti nýverið að loka stórum svæðum á Atlantshafshryggnum til að vernda viðkvæm vistkerfi fyrir áhrifum botnveiðarfæra. Lokunin nær til fimm svæða og er viðbót við þau svæði sem þegar hefur verið lokað í sama tilgangi. Samanlagt eru hin nýju svæði 330.000 ferkílómetrar eða sem nemur ríflegri þrefaldri stærð Íslands.

Sá hluti Atlantshafshryggjarins sem ekki fellur undir lokanir er skilgreindur sem „nýtt svæði“ og gilda sérstakar reglur um hugsanlegar botnveiðar á slíkum svæðum. Ráðstafanir sem ætlað er að styðja við frekari verndun viðkvæmra vistkerfa á úthafinu á samningssvæði NEAFC tóku gildi í janúar. Í aðdragandanum hafa allar botnfiskveiðar síðastliðinna tuttugu ára á samningssvæði NEAFC verið kortlagðar. - shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×