Komust úr þyrlunni áður en henni hvolfdi 18. júlí 2007 01:00 Þyrlan er búin fjórum utanáliggjandi belgjum til þess að hún geti flotið. Ástæðan fyrir að henni hvolfdi í sjónum er að einn belgurinn sprakk eftir að hann var blásinn upp. Fréttablaðið/vilhelm
Flak björgunarþyrlunnar TF-SIFJAR er nú geymt í flugskýli á vegum Rannsóknarnefndar flugslysa (RNF) eftir að því var bjargað í land aðfaranótt þriðjudags. RNF hefur tekið yfir forræði yfir flakinu af Landhelgisgæslunni (LHG) og vinnur að frumrannsókn slyssins. Forstjóri LHG segir gott veður og nálægð björgunarskips hafa skipt sköpum við björgun áhafnarinnar. Áhöfnin komst út úr vélinni áður en henni hvolfdi í sjónum. Eitt flotholt vélarinnar sprakk með þeim afleiðingum að henni hvolfdi. Þyrlan þurfti að nauðlenda í sjó út af Straumsvík. Fjögurra manna áhöfn bjargaðist, og komst hún úr úr vélinni af eigin rammleik. Orsakir slyssins eru ókunnar en talið er að hún hafi misst vélarafl þar sem hún var að æfingum ásamt Björgunarsveit Hafnarfjarðar. Flugstjórinn neyddist til að lenda þyrlunni í sjónum og var áhöfninni bjargað um borð í björgunarskipið Einar Sigurjónsson, sem var við æfingarnar. Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir að gott veður á slysstað og nálægð björgunarskipsins hafi skipt sköpum í björgun áhafnarinnar. „Til allrar lukku komust þeir líka út úr þyrlunni áður en henni hvolfdi í sjónum. Það er alveg ljóst að reynsla og þjálfun þessara manna varð til þess að þeir brugðust við aðstæðum eins faglega og í mannlegu valdi stóð.“ Georg segir að allar líkur séu á að öll áhöfn vélarinnar komi til fyrri starfa hjá LHG. Forsvarsmenn Björgunarsveitarinnar í Hafnarfirði telja mikla mildi að hífingar yfir björgunarskipinu stóðu ekki yfir þegar óhappið varð. Um tíu manns voru um borð og hætt hefði verið við slysi á mönnum hefði æfingin verið lengra komin, að þeirra mati. Sigurður Heiðar Wiium, flugstjóri á TF-SIF, segir að áhöfninni allri líði vel. „Þetta fór allt vel og við erum allir við hestaheilsu. Við erum búnir að tala saman og það verður framhald á því næstu daga.“ Sigurður segir að áhöfnin hafi fengið áfallahjálp fljótlega eftir slysið. „Það er full ástæða til því hver einstaklingur tekur atburðum sem þessum á misjafnan hátt.“ Þorkell Ágústsson, forstöðumaður RNF, segir að vettvangsrannsókn sé að ljúka og þá taki við frumrannsókn. Hljóðriti vélarinnar verður sendur til Bretlands eða Kanada þar sem gögn hans verða lesin.
Mest lesið „Erum við ekki að fara aðeins fram úr okkur“ Innlent Komust af sjálfsdáðum út úr brennandi íbúð í nótt Innlent Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Erlent Dæmdir fyrir að stela dósum af ÍBV Innlent Spjótin beinast að séra Jakobi og kaþólsku kirkjunni Innlent Skiptast á að gæta barnanna á meðan þau bíða eftir plássi Innlent Hraðlyginn leiðsögumaður úr landi Innlent Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Erlent Vaktin: Átökin breiðast enn út Erlent Með skerta athygli af óþekktum ástæðum þegar slysið varð Innlent Fleiri fréttir Segir ummæli séra Jakobs kalla á rannsókn lögreglu Átján Íslendingar óskað eftir sæti í björgunarferðum Niðurstöður samræmdu prófanna birtar eftir skólum Ummæli kanslara kaþólikka gagnrýnd og átján Íslendingar vilja far með björgunarvélum Hraðlyginn leiðsögumaður úr landi Eigendur Ítalíu í þriggja ára atvinnurekstrarbann Með skerta athygli af óþekktum ástæðum þegar slysið varð Dæmdir fyrir að stela dósum af ÍBV Leituðu skjóls í Hreysinu Bein útsending: Landssamráðsfundur gegn ofbeldi „Erum við ekki að fara aðeins fram úr okkur“ Hrunvarnir við Holtsnúp verði tilbúnar í ágúst Búið að opna veginn um Raknadalshlíð eftir flóðið Skiptast á að gæta barnanna á meðan þau bíða eftir plássi Komust af sjálfsdáðum út úr brennandi íbúð í nótt Grunaður um að kýla konu og sparka svo í hana þegar hún lá eftir Karólína Helga leiðir Viðreisn í Hafnarfirði Spjótin beinast að séra Jakobi og kaþólsku kirkjunni „Ekki Alþingi sem skipar mér hvað ég á að segja“ Matvöruverð hafi hækkað meira en laun og forsendur að bresta Einar Geir oddviti Miðflokks í Hafnarfirði Vegum lokað í kjölfar snjóflóðs í Raknadalshlíð Elliði lofar því að flytja ekki aftur til Eyja Formaður Viðreisnar í Reykjavík sakaður um fjárdrátt Ríkisstjórnin fái kynningu um þjóðaratkvæði á föstudag „Hversu lágt geta þingmenn lagst í störfum sínum?“ „Djöfulsins feita piggið þitt!“: Slapp með hótun sem hræddi ekki Samfylkingin og ríkisstjórnin lækka flugið Rósa vill leggja fjölmiðlanefnd niður Fótbrotinn og févana í Afríku Sjá meira