Inflúensan: Mest fjölgun tilfella í Bandaríkjunum 7. maí 2009 11:22 Alþjóðaheilbrigðisstofnunin er með viðbúnaðarstig 5 eins og staðan er í dag.
Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) voru alls 2.217 í morgun í 24 ríkjum í heiminum og hafði fjölgað um 568 á síðastliðnum sólarhring samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB. Í tilkynningu frá Sóttvarnarlækni og Almannavarnadeild segir að inflúensan hafi nú verið staðfest í fyrsta sinn í Svíþjóð og Póllandi, eitt tilfelli í hvoru landi en sem fyrr er ástandið alvarlegast í Mexíkó þar sem staðfest tilfelli eru ríflega 1.100 og 42 dauðsföll eru rakin til veikinnar. „Staðfestum tilfellum fjölgaði mest í Bandaríkjunum á síðastliðnum sólarhring. Þar eru þau orðin 745 talsins, þar af tvö dauðsföll. Í Evrópu fjölgar staðfestum tilfellum mest á Spáni," segir ennfremur. Þó ber ekki að túlka tölur um fjölgun tilfella beinlínis sem vísbendingu um aukna útbreiðslu veikinnar heldur er sennileg skýring annars vegar sú að sífellt fleiri rannsóknarstofur fái nú búnað til að greina inflúensuveiruna og hins vegar að stjórnvöld ríkja hafi eflt vöktun í heilbrigðiskerfum sínum til að fylgjast sem best með ástandinu á hverjum tíma. Staðfest tilfelli inflúensu A þann 7. maí 2009. Staðan á Íslandi Enginn hefur verið lagður inn á Landspítalann vegna gruns um inflúensusmit. Ekkert tilfelli inflúensu A (H1N1) hefur greinst hérlendis. „Heilbrigðisyfirvöld hér á landi hafa áfram varann á vegna inflúensunnar og nota tækifærið til að fara gaumgæfilega yfir marga lykilþætti í gildandi landsáætlun almannavarna vegna heimsfaraldurs inflúensu. Með annars er verið að kanna birgðastöðu matvæla, olíu, nauðsynlegra lyfja og annarra nauðsynjavara í landinu," segir einnig í tilkynningunni. Nánari upplýsingar um inflúensuna og ráðstafanir í því sambandi er að finna á landlaeknir.is, almannavarnir.is, influensa.is og heimasíðum Sóttvarnarstofnuanr Evrópusambandsins - ECDC, http://www.ecdc.europa.eu/ og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar - WHO, http://www.who.int/en/.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Fleiri fréttir „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Sjá meira