Fjölskylda Ragnars ekki enn heyrt í honum 7. maí 2009 18:25
Fangelsin í Brasilíu eru með þeim verstu í heiminum segir framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International. Hún segir aðbúnaðinn ómannúðlegan og niðurlægjandi. Fjölskylda Ragnars Erlings sem var handtekinn þar í landi fyrir tæpri viku, hefur enn ekki náð sambandi við hann. Amnesty International hefur í mörg ár haft miklar áhyggjur af aðbúnaði fanga í brasilískum fangelsum. Fangelsin eru yfirfull auk þess sem þau eru undirmönnuð af ófaglærðu starfsfólki. Gæsluvarðhaldsfangelsið þar sem Ragnar Erling Hermannsson er vistaður komst t.a.m. í fréttirnar á síðasta ári þegar 51 fangi slapp úr vistinni. Þann dag voru fimm fangaverðir á vakt. Fangarnir voru aftur á móti 987 talsins en fangelsið er byggt fyrir 311 einstaklinga. Ragnar lýsti aðbúnaðinum í viðtali við fréttastofu í gær þar sem hann sagðist deila klefa með 14 föngum. Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International segir fangelsin í Brasilíu þau verstu í heiminum. Fanganna bíði tvöfaldur dómur þar aðbúnaðurinn er ómannúðlegur og niðurlægjandi. Há glæpatíðni er í Brasilíu og annar réttarkerfið ekki álaginu. Jóhanna telur líklegt að Ragnar þurfi að bíða einhvern tíma áður en mál hans verður tekið fyrir en dæmi eru um að menn þurfi að bíða mánuðum og jafnvel árum saman áður en mál þeirra séu tekin til dómsferðar. Afplánun hér á landi kemur ekki til tals fyrr en Ragnar hefur hlotið sinn dóm í Brasilíu Heyra mátti á Ragnari að hann var óttasleginn um framhaldið. "Ég á eftir að deyja hérna", sagði Ragnar. Í samtali við fréttastofu sagði faðir Ragnars að fjölskyldan hafi enn ekki náð sambandi við hann. Það hafi verið skelfilegt að heyra í honum í fréttum Stöðvar 2 í gær. Ragnar fékk í dag heimsókn frá ræðismanni frá Svíþjóð sem færði honum nauðþurftir. Þá hefur hann fengið læknisaðstoð við matareitruninni. Fjölskyldan vill skila kæru þakklæti til allra þeirra sem hafa haft samband og lýst yfir stuðningi.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Sjá meira