Innlent

Litlar upplýsingar um óskattskyld félög þingmanna

Skattayfirvöld hafa litlar upplýsingar um óskattskyld félög sem stjórnmálamenn hafa stofnað í kringum prófkjör sín. Rekstrarform þeirra er það sama og til að mynda trúfélaga og líknarfélaga. Slík félög þurfa hvorki að skila skattframtölum né ársreikningum til skattayfirvalda.

Athygli skattayfirvalda hefur beinst að mikilli aukningu á stofnun svokallaðra félagasamtaka. Slík félög eru gjarnan stofnuð í kringum t.d. líknarfélög, húsfélög og íþróttafélög. Markmið slíkra félaga er yfirleitt að starfa að mannúðarmálum en þau eru undanþegin skatti. Þau þurfa því hvorki að skila framtölum né ársreikningum til skattayfirvalda. Eftirlit með starfseminni er því af skornum skammti. Stjórnmálamenn hafa undanfarin ár stofnað slík félög í kringum prófkjör sín. Hér má sjá brot af þeim félögum sem stofnuð hafa verið í þessum tilgangi:

Í ljósi frétta af háum styrkveitingum til einstakra stjórnmálamanna undanfarið er ljóst að félögin hafa velt tugum milljóna. Vafi leikur þó hvort aðilar sem eru skattskyldir samkvæmt lögum um tekjuskatt geti stofnað og rekið svona félög. Reglur um félögin eru ekki skýrar en sú staða gæti komið upp að eigið fé sem þau mynda verði skattskylt hjá eigandanum. Aukning á stofnun félaganna kallar á að skoðað verði hvort menn séu hugsanlega að setja skattskylda starfsemi inn í óskattskyld félög til að komast hjá skattgreiðslum en eins og staðan er í dag hafa skattyfirvöld litlar upplýsingar um hvað félögin eru að sýsla við.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×