Hótanir í Hrútafirði vegna bensínstöðvar 13. febrúar 2010 07:00
Staðarskáli ehf. og eigendur jarðarinnar Staðar í Hrútafirði sögðust í bréfi til hreppsnefndar Bæjarhrepps myndu beita afli sínu til að hindra að leyfi yrði gefið fyrir öðrum þjónustuskála í Hrútafirði. Eins og fram hefur komið hefur Skeljungur reynt frá árinu 2006 að fá leyfi til að reisa þjónustustöð í landi Fögrubrekku í Hrútafirði. Á árinu 2008 var opnaður nýr Staðarskáli í botni Hrútafjarðar. Nýi skálinn leysti af hólmi bæði gamla Staðarskála og þjónustuskálann á Brú. Á báðum þessum stöðum var eldsneytissala frá N1 og svo er einnig í nýja Staðarskálanum. Áform Skeljungs fóru illa í eigendur Staðarskála. „Það er öllum ljóst sem vilja vita að ekki er rekstrargrundvöllur fyrir tveim þjónustumiðstöðvum í botni Hrútafjarðar á ársgrundvelli og teljum við það mikið ábyrgðarleysi af hálfu hreppsnefndar Bæjarhrepps að gefa leyfi fyrir annarri þjónustumiðstöð við hlið þeirrar sem við höfum hug á að byggja," segir í harðorðu bréfi sem Kristinn Guðmundsson sendir fyrir hönd Staðarskála og landeigenda að Stað til oddvita Bæjarhrepps í nóvember 2006. „Við teljum að það sé verið að koma í bakið á okkur. Í fyrsta lagi með því að setja þjónustupunkt í landi Fögrubrekku og annars vegar ef Skeljungi hf. verður gefið leyfi til að reisa þjónustumiðstöð svo stutt frá okkur og þá teljum við um leið ekki forsendu fyrir okkur að samþykkja tillögur að aðalskipulagi," segir í bréfinu til oddvitans, þar sem vísað er til samtala hreppsnefndarmanna og Staðarmanna. „Kjörnir fulltrúar sem bjóða sig fram í hreppsnefndir hljóta að verða að taka tillit til þess sem áður hefur verið gert í sveitarfélaginu." Í bréfinu sést að Kristinn telur Staðarmenn hafa sterk spil á hendi til að sveigja Bæjarhrepp að hagsmunum Staðarskála. Bendir hann á að fyrirtækið og landeigandinn hafi tekið tillit til vilja heimamanna í Bæjarhreppi um að tenging Djúpvegar við nýja hringveginn kæmi í botni Hrútafjarðar en ekki sunnar. „Höfum við töluvert um það að segja þar sem við erum með starfsemi í Brú og eigum þar land, einnig er öll veglínan í Húnaþingi vestra í landi Staðar. Það er óumflýjanlegt að aðalskipulag beggja sveitarfélaganna verði að taka tillit til þeirrar starfsemi sem við erum með - að öðrum kosti komum við til með að leita réttar okkar svo eftir verður tekið," segir í bréfi Staðarmanna til oddvita Bæjarhrepps. gar@frettabladid.is
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Fleiri fréttir „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar Sjá meira