Stjórnvöld geti ekki vikið sér undan ábyrgð 13. febrúar 2010 12:08
Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður, segir að stjórnvöld geti ekki vikið sér undan ábyrgð þegar kemur að fjárhagslegri endurskipulagningu skuldsettra fyrirtækja. Á fundi viðskiptanefndar með forsvarsmönnum bankanna í gær kom fram að þeir telji sig vinna að fullu eftir vilja stjórnvalda og þeim skilaboðum sem stjórnvöld hafi gefið bönkunum sem eigendur. Viðskiptanefnd Alþingis fundaði með forsvarsmönnum bankanna, bankasýslu ríkisins og samtaka fjármálafyrirtækja í gær um verklagsreglur bankanna. Boðað var til fundarins til að ræða skuldameðferð fyrirtækja og aðkomu eigenda að hugsanlegri endurskipulagningu fyrirtækja sinna - en mál Haga og Samskipa hafa verið mikið í umræðunni að undanförnu. Á fundinum kom skýrt fram að forsvarsmenn bankanna telji sig vinna að fullu eftir vilja stjórnvalda og þeim skilaboðum sem stjórnvöld hafi gefið bönkunum sem eigendur. Skilanefndir Kaupþings og Glitnis stýra nú Arion og Íslandsbanka, en þar á ríkið einnig hlut. Landsbankinn er að mestu í eigu ríkisins. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður, segir að rætt hafi verið sérstaklega um málefni Samskipa og Haga, en eigendur þeirra, núverandi og fyrrverandi, skulda Arion háar fjárhæðir. Gagnrýnt hefur verið að Ólafur Ólafsson, sem hefur réttarstöðu grunaðs í rannsókn á meintri markaðsmisnotkun hjá Kaupþingi og skuldar Arion banka tugi milljarða í gegnum félög sín hafi fengið að halda Samskipum eftir endurskipulagningu. Guðlaugur Þór segir að stjórnvöld stýri málum. Frá bankahruni hafi bankarnir verið beint og óbeint á forræði stjórnvalda.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Innlent Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Innlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fleiri fréttir Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Sjá meira