Innlent

Mál Vilhelms Þorsteinssonar fyrir rétt í Noregi

Norska strandgæslan sleppti fjölveiðiskipinu Vilhelm Þorsteinssyni EA úr haldi í Norður-Noregi í gærkvöldi gegn tryggingu. Útgerðin hafnaði dómssátt og fer málið fyrir rétt í Noregi.

Norskt strandgæsluskip færði Vilhelm til hafnar í Norður-Noregi í fyrradag fyrir brot á norsku fiskveiðilöggjöfinni. Skipstjóranum láðist að greina rétt frá atferli sínu í síðustu veiðiferð við Noregsstrendur þar sem skipið hefur síldveiðiheimildir.

Þrátt fyrir tilraunir útgerðarinnar til að leiðrétta það, meðal annars með aðstoð Landhelgisgæslunnar og Fiskistofu, tók strandgæslan skipið um leið og það kom frá Íslandi á miðin á ný. Útgerðin þurfti að setja tveggja milljóna króna tryggingu áður en skipinu var sleppt í gærkvöldi.

Norsk yfirvöld höfðu áður boðið dómssátt með sektargreiðslu en þvi hafnaði útgerðinn þannig að málið fer fyrir rétt í Noregi. Samt sem áður fær Vilhelm að halda áfram veiðum við Noregsstrendur og er á leið á miðin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×