Álver eykur ekki þenslu 1. mars 2006 23:19 MYND/Teitur
Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, telur að álversframkvæmdir á Bakka við Húsavík rúmist vel innan efnahagskerfisins. Hann segir nauðsynlegt að horfa til framtíðar en það sé gert með þessum framkvæmdum. Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út á Húsavík þegar tilkynnt var að bandaríska fyrirtækið Alcoa hefði valið Bakka við Húsavík fyrir byggingu hugsanlegs álvers á Norðurlandi. Áformin voru staðfest með undirritun samkomulags milli Alcoa og ríkisstjórnar Íslands um að kanna hagkvæmni þess að reisa þar 250 þúsund tonna álver. Halldór Ásgrímsson segir allan undirbúning hafa verið vandaðan. Hann er ánægður með samkomulagið og telur ekki að álverið muni valda aukinni þenslu í hagkerfinu. Halldór segir klárt að rúm sé fyrir þessa framkvæmd. Engar tímasetningar hafi verið settar fram og menn megi ekki dæma út frá deginum í dag. Með samkomulaginu sé verið að hugsa til framtíðar en ljóst sé að fara verði í nýjar framkvæmdir í nánustu framtíð. Halldór segir að ef skynsamlega verið staðið að álverinu þá ætti að vera rúm fyrir það í hagkerfinu. Mikilvægt sé að öllum framkvæmdum sé dreift vel yfir ákveðið tímabil og svo vilji til að ef af verður þá sé stefnt á að byggja álverið upp í mörgum áföngum. Framkvæmdir hefjast í fyrsta lagi árið 2010. Halldór segir álverið mikilvægt fyrir atvinnuuppbyggingu á svæðinu en byggja þurfi upp atvinnulífið og það þurfi að taka þeim tækifærum sem bjóðast. Orkan sé auðlind Íslendinga og hana þurfi að nýta.
Fréttir Innlent Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Sjá meira