2,3 milljarða króna halli í borgarsjóði Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 29. ágúst 2014 07:00 Borgarsjóður rekur fagsviðin, meðal annars grunnskóla og þjónustu við fatlað fólk, Eignasjóð og Bílastæðasjóð. vísir/gva
Óendurskoðaður árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar til júní 2014 var staðfestur í borgarráði í gær. Þar kemur fram að rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar sé jákvæð um 3,7 milljarða króna og 1,5 milljörðum betri en gert var ráð fyrir. Aftur á móti, ef eingöngu er litið til reksturs borgarsjóðs, sem er starfsemi sem fjármögnuð er með skatttekjum og þjónustugjöldum en ekki fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki borgarinnar, er niðurstaðan neikvæð um 2,3 milljarða.Birgir Björn Sigurjónsson, fjármálastjóri ReykjavíkurborgarSjálfstæðismenn í borginni gagnrýna að reksturinn sé 640 milljón krónum lakari en áætlanir gerðu ráð fyrir og einnig að tap á borgarsjóði sé fjögur hundruð milljónum krónum meira en í fyrra. „Þrátt fyrir hækkun útsvarstekna um tæpan einn milljarð er farið fram úr því sem var áætlað,“ segir Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Birgir Björn Sigurjónsson, fjármálastjóri Reykjavíkurborgar, segir að helsta ástæða hallans sé lítil sala á byggingarrétti fyrri part ársins. „Hins vegar segir reynslan okkur að seinni hluti ársins er tekjusterkari tími.“ Annað sem útskýrir hallann, að sögn Birgis, er þjónusta fyrir ríkið sem ekki hefur verið bætt upp með tekjum. „Það var gríðarleg aukning á kostnaði vegna yfirtöku á málefnum fatlaðs fólks. Það koma vaxandi kröfur frá ríkisvaldinu um aukna þjónustu sem við fáum ekki bætta með auknum fjárlögum. Það sama á við um 240 milljóna halla vegna hjúkrunarheimila.“ Birgir ítrekar þó að heildarniðurstaðan sé betri en búist var við. „Í heildina séð er borgin með sterka fjárhagsstöðu og við erum ekki óróleg yfir þessu.“ Halldór segir heildarniðurstöðuna vera villandi. „Einn stærsti liðurinn sem færður er inn í tekjur er áætlun um hve mikið verðmæti íbúða Félagsbústaða hefur aukist á hálfu ári, sem er 2,4 milljarðar. Það er ekkert á bak við þetta þar sem eignirnar eru ekki til sölu. Ef maður tekur þennan lið út og sambærilegan lið frá því í fyrra kemur í ljós að rekstrarniðurstaðan er verri í ár en í fyrra,“ segir Halldór og bætir við að þetta kalli á uppstokkun og nýja hugsun í rekstri borgarinnar.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira