Innlent

Vill að réttarhöldunum verði sjónvarpað í beinni útsendingu

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Þó að barnaverndaryfirvöld stingi höfðinu í sandinn núna, þá er ég alveg með á hreinu að þetta varði við barnavendarlög," segir Gylfi.
Þó að barnaverndaryfirvöld stingi höfðinu í sandinn núna, þá er ég alveg með á hreinu að þetta varði við barnavendarlög," segir Gylfi.
Gylfi Ægisson hefur sent frá sér tilkynningu í kjölfar frétta af hugyndum Kristínar Sævarsdóttur um að sækja hann til saka fyrir ærumeiðandi ummæli í garð samkynhneigðra.

Þar segir hann tíðindin vera miklar gleðifréttir og fari svo að málið endi fyrir dómstólum muni hann krefjast þess að réttarhöldunum verði sjónvarpað í beinni útsendingu, „til að allur skíturinn komi í ljós,“ eins og þar stendur.

Hann ítrekar að hann hafi undir höndum ljósmyndir frá Gleðigöngunni og skrif einstaklings sem Gylfi segir að hafi „farið með börnin sín burt frá ósómanum“. Þá eigi Gylfi einnig ljósmynd af karlmanni í leðurbuxum „opnum að framan og sást í brókina og falið typpið þar bak við“ sem renni stoðum undir fullyrðingar hans um klámvæðingu hátíðarinnar.

Gylfi fór með málið til lögreglunnar eftir Gleðigönguna í fyrra en sérstakur saksóknari ákvað þó að viðhafast ekkert þegar Gylfi hugðist sækja Hinsegin daga til saka.

„Ég hef trú á að þjóðin væri ekki á sama máli enda er ég með fullt að tölvupóstum frá hinum almenna borgara sem hefur blöskrað klámvæðing hinsegin daga  í gegnum árin og eins get ég sýnt helling af myndum úr þessum göngum sem sanna mitt mál,“ segir Gylfi í tilkynningunni.

Hann vandar dómsvaldinu, Barnaverndarnefnd, yfirvöldum og borgarstjóranum ekki kveðjurnar í yfirlýsingu sinni og segist ekki óttast möguleg málaferli.

„Ég er tilbúinn að sitja í fangelsi enda kominn á ellilaun, en ef ég vinn málið þarf að reisa fangelsi fyrir þá sem ég taldi upp,“ segir Gylfi og vísar í 93. grein barnaverndarlaga máli sínu til stuðnings.

Þar stendur: „Börnum yngri en 18 ára er óheimilt að taka þátt í nektarsýningum eða öðrum sýningum af kynferðislegum toga. Skipuleggjendur slíkra sýninga bera ábyrgð á því að þátttakendur í þeim hafi náð tilskildum aldri.“


Tengdar fréttir

Íhugar alvarlega að kæra Gylfa fyrir hatursáróður

Margir hafa hvatt Kristínu Sævarsdóttur, stjórnarmann Hinsegin daga, til að leggja fram kæru á hendur Gylfa Ægissyni fyrir ummæli sem bendla samkynhneigða við barnaníð og heilaþvott.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×