„Ég þekki það sjálf hvernig er að vera barn og láta óttann hamla sér“ Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 13. desember 2020 09:01 Sara Pálsdóttir lögfræðingur og barnabókarhöfundur. Vísir/Vilhelm „Bókaskrif voru ekkert sérstaklega á dagskrá hjá mér og hvað þá að verða dáleiðari eða orkuheilari,“ segir lögfræðingurinn Sara Pálsdóttir, sem síðustu mánuði hefur fært sig inn á nýjar brautir í lífinu. „
Ég stóð frammi fyrir því snemma árs 2019 að hafa verið að glíma við kvíða, þreytu og krónískt verkjavandamál í þónokkur ár. Ég hafði leitað mér alls konar meðferða og ráða við þessu en ekkert gekk og ég var orðin allverulega kvalin vegna þessa, átti meðal annars erfitt með að stunda vinnu.“ Sara leit á þetta sem tímamót og byrjaði að endurhugsa ákveðna hluti. „Þá tók ég að stunda hugleiðslu og það tók ekki nema örfáar vikur að fá algjöra lausn undan öllum þessum kvillum, meðal annars með dáleiðslu og orkuheilun og þjálfun hugans.“ Heilunarmáttur í undirmeðvitundinni Þetta kom henni í alveg nýja átt, sem átti eftir að hafa mjög jákvæð áhrif. „Samhliða þessu fann ég fyrir brennandi eldi innra með mér að læra dáleiðslu og allt sem ég gat um undirmeðvitundina og hvernig hún virkar, en það er gríðarlega öflugur heilunarmáttur í undirmeðvitundinni og hann er hægt að virkja. Ég lærði líka ákveðna tegund af orkuheilun sem miðar við að hreinsa út neikvæðar tilfinningar úr líkamanum sem geta safnast upp og skapað neikvæð einkenni og út frá henni þróaði ég mína eigin aðferð við orkuheilun sem er gríðarlega áhrifarík.“ Dáleiðsla og heilun hafa því breytt lífi Söru mikið síðustu mánuði. „Ég held að þessi heilunarbransi sé svolítið mikill frumskógur. Ég mæli alltaf með að fólk fái meðmæli eða kynni sér vel áður en það leitar til heilara eða kannski sérstaklega dáleiðara því það er verið að eiga við undirmeðvitund fólks sem er afar vandmeðfarið. Ég hafði sjálf enga trú á neinu svona áður en ég gat ekki annað en sannfærst þegar ég reyndi sjálf og fékk algert frelsi frá kvíða, verkjum, sólarofnæmi og neikvæðum hugsunum.“ Varð að skrifa þessa bók Sara sendi frá sér sína fyrstu bók nú fyrir jólin. Bókin Snareðlan sem gat, er barnabók sem á meðal annars að hjálpa börnum að finna hugrekki. „Lögmennskan heillar mjög og er krefjandi og spennandi en undanfarið ár og mánuði hef ég verið að leiðast inn á aðrar brautir samhliða lögmennskunni, sem sagt dáleiðslu, orkuheilun og barnabókaskrif.“ Hún á tvo drengi, fjögurra ára og átta mánaða. Bókina skrifaði hún í fæðingarorlofi. „Hef ég frá mjög unga aldri þeirra lesið bækur fyrir þá báða og eldri drengurinn þekkir ekkert annað en að lesa fyrir svefninn og hann elskar bækur.“ Sara hafði því oft hugsað um það að skrifa bók fyrir börn sem hún gæti líka lesið fyrir drengina sína. „Í einni hugleiðslunni kom svo til mín hugmyndin að þessari bók og ég varð að skrifa hana. Í bókina hef ég blandað saman þekkingu minni á kvíða og hvernig undirmeðvitundin virkar og svo eigin reynslu sem að þessu lýtur.“ Tækifæri til að fá forskot Bókin segir frá snareðlu sem var svo sannfærð um að hún gæti ekki það sem hana langaði að gera, svo hún vildi ekki einu sinni reyna. „Ég þekki það sjálf hvernig er að vera barn og láta óttann hamla sér og stöðva sig, líka sem fullorðin einstaklingur. Hversu oft hefur maður í lífinu látið óttann stöðva sig í að gera eitthvað sem manni langaði, eða koma í veg fyrir að maður láti draum sinn rætast, eða stígi eitthvað skref sem mann dreymir um?“ segir Sara. Snareðlan sem gat á meðal annars að kenna börnum um hugrekki.Vísir/Vilhelm „Mig langaði að gefa börnum tækifæri til að fá ákveðið forskot, fá jákvætt forrit í undirmeðvitundina sem kennir þeim að stíga inn í óttann, velja hugrekkið og fá trú á sjálfum sér. Tel ég að mér hafi tekist þetta í þessari bók og hef meðal annars séð jákvæð áhrif hennar á eldri drenginn minn.“ Þó að bókin sé skrifuð með börn í huga, hafa fullorðnir líka gott af því að heyra innihald hennar, segir Sara. Það er nefnilega allt í lagi að vera hræddur. Í bókinni er snareðlunni kennt að það að vera hugrakkur þýðir ekki að maður verði aldrei hræddur. „Það að vera hugrakkur þýðir nefnilega að maður láti óttann ekki stöðva sig,“ segir meðal annars í bókinni. „Að geta meðvitað valið hugrekkið í stað þess að láta óttann stjórna, gerir okkur kleift að útrýma neikvæðum áhrifum óttans, gerir okkur kleift að þora að vera við sjálf og láta drauma okkar rætast og það er markmiðið með bókinni. Í reynd felur hún í sér boðskap sem er jafn mikilvægur fyrir börn og foreldra,“ útskýrir Sara. Frelsi að stíga inn í óttann „Þessi bók er fyrir alla, bæði börn og foreldra, sem þekkja neikvæð og hamlandi áhrif óttans á líf og líðan og vilja læra að velja hugrekkið, stíga inn í óttann og finna frelsið sem fylgir því. Að læra það að við höfum val, raunverulegt val þegar kemur að þessu. Vel ég óttann eða vel ég hugrekkið, frelsið? Það er gríðarlega mikilvægt að við setjumst niður með börnunum okkar og ræðum þessa hluti við þau og kennum þeim og bókin getur verið öflugt hjálpartæki til þess en svo er hún líka skemmtileg.“ Það kom aldrei neitt annað til greina en að fyrsta barnabók Söru myndi fjalla um risaeðlur á einn eða annan hátt, enda mikið talað um þær á hennar heimili. „Aðalsöguhetjan, litla snareðlan, sækir innblástur sinn í ofuraðdáun eldri sonar míns á risaeðlum af öllu tagi frá mjög unga aldri. En að sama skapi sá ég þessa snareðlu fyrir mér þegar hugmyndin að bókinni kom til mín í hugleiðslu. Risaeðlur hafa líka eitthvað sérstakt aðdráttarafl fyrir ung börn.“ Sara segir mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir því að kvíðinn sé hættulegur í þeim skilningi að hann getur valdið krónísku streituástandi hjá viðkomandi. „Streitan er eitruð og því legg ég alltaf höfuðáherslu á að ná niður kvíðanum hjá skjólstæðingum mínum. Sérhæfing mín er mikið á þessu sviði og tengist barnabókin mín því. Þá er ég farin af stað með tveggja daga kvíðanámskeið í gegn um fjarfundarbúnað þar sem ég blanda saman fræðslu, hugarþjálfun, dáleiðslu og orkuheilun til að hjálpa fólki að fá frelsi frá kvíða. Fyrsta námskeiðið gekk vonum framar og ég hlakka mikið til framhaldsins.“ Hún hvetur alla foreldra til að gefa börnunum sínum forskot. „Kennum þeim að óttast ekki óttann, heldur stíga inn í hann og velja hugrekkið og láta drauma okkar rætast.“
Bókaútgáfa Börn og uppeldi Helgarviðtal Tengdar fréttir Hjólaði þvert yfir Ísland og hljóp Laugaveginn daginn eftir Ljósmyndarinn og ævintýramaðurinn Chris Burkard hefur komið í 43 heimsóknir til Íslands á síðustu 15 árum. Hann leitar stöðugt að nýjum ástæðum til að koma til landsins og lætur sig dreyma um að eignast hús hér á landi. 21. nóvember 2020 08:00 „Ég var orðin þreytt á höfnunum á vinnumarkaði“ „Ég hef rekið lítið fyrirtæki að heiman frá árinu 2018 en samhliða því verið að leita mér að vinnu þar sem ég get nýtt mína menntun, notið félagsskaps í vinnunni og gert það sem ég hef áhuga á. Hingað til hefur það ekki gengið og í byrjun árs ákvað ég að taka smá pásu í því þar sem fjöldi neitana var orðin yfirþyrmandi,“ segir Halldís Guðmundsdóttir. Eftir að vera búin að vera heima í heilt ár ákvað hún svo að skapa eigin tækifæri. 29. nóvember 2020 09:00 „Það opnast alltaf einhverjar nýjar dyr“ „Það er bara allt að verða klárt“ segir söngkonan Sigga Beinteins, sem undirbýr nú jólatónleikana sína. Viðburðurinn verður með óhefðbundnu sniði í ár, en vegna heimsfaraldursins verða engir áhorfendur í Hörpu og geta Íslendingar horft á tónleikana í sjónvarpi sínu eða í gegnum streymi á föstudagskvöldið. 3. desember 2020 08:00 Mest lesið Fékk Laufeyju í afmælið: „Maggi bróðir hefur alltaf verið betri en aðrir að gefa gjafir“ Lífið Hélt auganu en missti af frumsýningu eftir að hafa fengið golfkúlu í andlitið Lífið Helen Óttars og Rubin Pollock slá sér upp Lífið „Lífið gefur okkur mislangan tíma og ég vil nýta minn til hins ýtrasta“ Lífið Betra sem hárbindi en tagl í Bríeti Tíska og hönnun Heitasta hámhorfið í haust Lífið Vakti yfir sofandi sonunum vopnuð hnífi Lífið Stíflaður mjólkurkirtill reyndist ólæknandi krabbamein Lífið Hárolía, vinur eða óvinur hársins? Lífið samstarf Blondie verður stjarnan á RIFF um helgina Lífið Fleiri fréttir „Ef ég vil breyta heiminum þarf ég að byrja á mér sjálfri“ Fékk Laufeyju í afmælið: „Maggi bróðir hefur alltaf verið betri en aðrir að gefa gjafir“ Leyndarmál Móu að hinni fullkomnu kvöldförðun Allt jafnt fyrir lokaspurninguna og spurt var um stað Vakti yfir sofandi sonunum vopnuð hnífi Stíflaður mjólkurkirtill reyndist ólæknandi krabbamein „Lífið gefur okkur mislangan tíma og ég vil nýta minn til hins ýtrasta“ Þúsundir fögnuðu Steinu og sögulegu samstarfi Helen Óttars og Rubin Pollock slá sér upp Alma Möller, Binni Glee og Sigríður Snævarr saman í bíó Plakatarisi og uppáhalds listamaður Spielberg allur Hélt auganu en missti af frumsýningu eftir að hafa fengið golfkúlu í andlitið „Hvetjandi að sjá stelpu með sama húðlit og ég sigra“ Heitasta hámhorfið í haust Pistasíu- og döðludraumur Jönu D'Angelo er látinn Laufey gerist rithöfundur Boðberi jólanna risinn á ný „Hélt að hjartað myndi springa úr brjóstinu“ Vigdís Häsler flutt til Sveins Andra Þórarinn Arnar keypti glæsihús Tona á Arnarnesi Ómar og Eva Margrét gift og gengu frá kaupmála Ætlar ekki að verða stærstur, bara bestur Eignuðust „risastóran“ dreng Grét oft fyrstu mánuðina en gafst ekki upp Ungur karlmaður á Akureyri hefur saumað tvo þjóðbúninga á sig „Hann er góð blanda af Labrador og German Shepherd“ Hætt við atkvæðagreiðslu um þátttöku Ísraels í Eurovision Léttir að fá greininguna eftir langvarandi verki Gugga lét Gauta heyra það fyrir hæð hans Sjá meira
Hjólaði þvert yfir Ísland og hljóp Laugaveginn daginn eftir Ljósmyndarinn og ævintýramaðurinn Chris Burkard hefur komið í 43 heimsóknir til Íslands á síðustu 15 árum. Hann leitar stöðugt að nýjum ástæðum til að koma til landsins og lætur sig dreyma um að eignast hús hér á landi. 21. nóvember 2020 08:00
„Ég var orðin þreytt á höfnunum á vinnumarkaði“ „Ég hef rekið lítið fyrirtæki að heiman frá árinu 2018 en samhliða því verið að leita mér að vinnu þar sem ég get nýtt mína menntun, notið félagsskaps í vinnunni og gert það sem ég hef áhuga á. Hingað til hefur það ekki gengið og í byrjun árs ákvað ég að taka smá pásu í því þar sem fjöldi neitana var orðin yfirþyrmandi,“ segir Halldís Guðmundsdóttir. Eftir að vera búin að vera heima í heilt ár ákvað hún svo að skapa eigin tækifæri. 29. nóvember 2020 09:00
„Það opnast alltaf einhverjar nýjar dyr“ „Það er bara allt að verða klárt“ segir söngkonan Sigga Beinteins, sem undirbýr nú jólatónleikana sína. Viðburðurinn verður með óhefðbundnu sniði í ár, en vegna heimsfaraldursins verða engir áhorfendur í Hörpu og geta Íslendingar horft á tónleikana í sjónvarpi sínu eða í gegnum streymi á föstudagskvöldið. 3. desember 2020 08:00