Erlent

Segir konurnar geta sóst eftir að af­létta trúnaði

Atli Ísleifsson skrifar
Mike Bloomberg er auðjöfur og fyrrverandi borgarstjóri New York, en hann sækist nú eftir að verða forsetaefni Demókrataflokksins.
Mike Bloomberg er auðjöfur og fyrrverandi borgarstjóri New York, en hann sækist nú eftir að verða forsetaefni Demókrataflokksins. Getty

Bandaríski forsetaframbjóðandinn Mike Bloomberg segir að kvenkyns fyrrverandi starfsmenn hans, sem gert hafi verið hann samninga um trúnað, geti nú leitað til fyrirtækis hans og þannig komist undan þeirri þagnarskyldu sem samningarnir kveða á um.

Fjölmargar konur hafa sakað Bloomberg og fyrirtæki hans um mismunun og orðfæri sem einkennist af kvenfyrirlitningu.

Kastljósið hefur beinst að samningunum eftir að forsetaframbjóðandinn Elizabeth Warren spurði Bloomberg út í þá í kappræðum forsetaframbjóðenda Demókrata fyrr í vikunni.

Í yfirlýsingu frá fyrirtæki Bloomberg segir að farið hafi verið yfir gögn síðustu þriggja áratuga og upp úr krafsinu hafi komið að þrír slíkir samningar hafi verið gerðir.

Geti konurnar sem um ræðir nú leitað til fyrirtækisins og látið aflétta trúnaðinum.

Bloomberg er auðjöfur og fyrrverandi borgarstjóri New York, en hann sækist nú eftir að verða forsetaefni Demókrataflokksins í forsetakosningunum sem fram fara í nóvember næstkomandi.


Tengdar fréttir

Bloomberg nú með næstmestan stuðning á eftir Sanders

Milljarðamæringurinn Michael Bloomberg mælist nú með næstmestan stuðning meðal Demókrata á eftir öldungadeildarþingmanninum Bernie Sanders, ef marka má niðurstöður nýrrar könnunar sem birt var af fréttaveitunni Reuters.

Baunuðu á Bloomberg

Sex forsetaframbjóðendur Demókrataflokksins komu saman í kappræðum í Nevada í gærkvöldi. Kvöldið einkenndist af því að allir fóru gegn auðjöfrinum Mike Bloomberg í baráttu það hver etur kappi við Bernie Sanders um tilnefningu Demókrataflokksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×