Innlent

Um tvö þúsund rúður brotnuðu í gróður­húsi

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Reynir Jónsson, segir að tjónið hjá Reykási sé á bilinu 80 til 100 milljónir króna.
Reynir Jónsson, segir að tjónið hjá Reykási sé á bilinu 80 til 100 milljónir króna. Magnús Hlynur Hreiðarsson.

Sérhæfðir gluggaísetningarmenn frá Hollandi eru komnir til landsins til að skipta um tvö þúsund rúður, sem brotnuðu í gróðurhúsi skammt frá Flúðum í óveðrinu 14. febrúar. Öll uppskera eyðilagðist vegna glerbrota, sem fóru yfir plönturnar. Tjónið á gróðurhúsunum er metið á 80 til 100 milljónir króna.

Gróðurhúsin hjá gróðrarstöðinni Reykási í Hrunamannahreppi í Miðfellshverfinu skammt frá Flúðum eru eins og gatasigti því um tvö þúsund rúður brotnuðu í ofsaveðrinu sem gekk yfir svæðið 14. febrúar.

Í gróðurhúsunum, sem eru um 5.500 fermetrar, hafa verið ræktaðar gúrkur, tómatar og salat en öll uppskeran eyðilagðist.

Reynir Jónsson og Sólveig Sigfúsdóttir eru garðyrkjubændur staðarins með níu starfsmenn í vinnu. Reynir var á staðnum þegar veðrið gekk yfir.

„Það var eiginlega allt snarvitlaust, glerbrot og óþverri fljúgandi út um allt. Ég var inni á skrifstofunni og beið þetta af mér því að það var ekkert hægt að fara inn í húsin út af glerhruni,“ segir Reynir.

Gróðurhúsin eru eins og gatasigti enda rúður brotnar út um allt eftir óðverið 14. febrúar 2020.Magnús Hlynur Hreiðarsson.

Starfsfólk vinnur nú í því að hreinsa plönturnar út úr gróðurhúsunum og týna upp glerbrotin sem eru út um allt. Þá eru sérhæfðir gluggaísetningamenn fyrir gróðurhús mættir frá Hollandi til að setja nýjar rúður í húsin fyrir þær sem brotnuðu.

„Þetta mun taka svolítinn tíma. Mér sýnist að þetta gæti farið upp í mánuð að klára allt, alla glerjun, þó það gangi vel þá er þetta bara það mikið sem eftir er, þeir eru kannski búnir með einn fimmta núna á fjórum dögum og ég held að það gæti farið fast í mánuð sem þetta tekur.“

Öll uppskera í húsunum eyðilagðist enda glerbrot út um allt. Nokkra mánuði tekur að ná henni upp aftur.

Sólveig við hreinsunarstörf inn í gróðurhúsi, þar er margna vikna verk framundan að hreinsa öll glerbrotin og við að henda plöntunum út úr húsunum.Magnús Hlynur Hreiðarsson.

En hvað er tjónið mikið í peningum talið?

„Ég er hræddur um að þetta geti verið einhverjar 80 til 100 milljónir króna. Mér sýnist það eins og staðan er í dag, það er mikið af ræktunarbúnaði ónýtur og glertjónið er miklu meira en ég gerði mér grein fyrir. Ég á að vera tryggður fyrir þessu að mestu leyti en það lendir alltaf eitthvað á manni sjálfum.“ segir Reynir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×