Tónlist

Hildur valin tónlistarmaður ársins: „Fann mikla breytingu eftir #metoo“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hildur kemur enn til greina til Óskarsverðlauna en greint verður frá tilnefningum 13. janúar.
Hildur kemur enn til greina til Óskarsverðlauna en greint verður frá tilnefningum 13. janúar. mynd / Timothèe Lambrecq

Golden Globe verðlaunahafinn Hildur Guðnadóttir hlaut titilinn Tónlistarmaður ársins hjá tónlistartímaritinu The Reykjavík Grapevine sem kom út í dag en þetta kemur fram í tilkynningu frá Grapevine.

„Ég fann mikla breytingu eftir #metoo byltinguna. Tónlistariðnaðurinn er miklu meðvitaðri um skort á framlagi kvenna til kvikmyndatónlistar og tölurnar tala sínu máli,“ sagði Hildur í viðtali við Reykjavík Grapevine þegar rætt var við hana aðeins tveimur dögum áður en hún hlaut gullhnöttinn eftirsótta. 

„Ég held samt að besta leiðin til þess að breyta þessu sé að mæta í vinnuna og sýna þannig gott fordæmi,“ sagði hún svo um ótrúlega velgengni síðasta árs, en viðtalið má lesa í heild sinni í tímariti Reykjavík Grapevine eða á vefsíðu tímaritsins, grapevine.is en þar segist hún meðal annars ætla að hvíla sig á kvikmyndatónlist að sinni og að hún hyggi á samstarf með Ólafi Elíassyni myndlistarmanni.

Hatarar með lag ársins

Þá fengu Hatari verðlaun fyrir besta lag ársins, hið umdeilda framlagi Íslendinga til Eurovision, Hatrið mun sigra. 

K.óla, sem prýðir forsíðu tímaritsins, fær sérstaka viðurkenningu í flokki sem kallast á íslensku, „Það sem þú ættir að hafa heyrt“ (e. you should have heard this). Hún gaf út plötuna Allt Verður Alltílæ sem vakti umtalsverða athygli á síðasta ári og kom henni rækilega á tónlistarkortið.

Þungarokkshljómsveitin Une Misère hlaut viðurkenningu fyrir bestu plötu ársins, Sermon, en hljómsveitin hefur náð eftirtektarverðum alþjóðlegum árangri á sviði þungarokksins. 

Þá fékk raftónlistarmaðurinn Bjarki [Rúnar Sigurðsson] og leikstjórarnir Daníel Heimisson og Baldvin Vernharðsson viðurkenningu fyrir besta íslenska myndbandið í ár við lagið ANA5 af plötu Bjarka, Happy Earthday. 

Klippa: Bjarki - ANa5

 

Heilluðu Robert Smith upp úr skónum

Myrkrarokkararnir í Kælan Mikla fengu svo viðurkenningu fyrir bestu tónleikaframmistöðuna á árinu, sem var vægast sagt einstök og heilluðu þær meðal annars forsprakka The Cure, Robert Smith, upp úr skónum sem bauð þeim að spila á tónleikum með sveitinni sem og á listahátíð í Bandaríkjunum þar sem stórsveitir eins og Pixies og Deftones spiluðu einnig.  

Hip-hop hugmyndafræðingarnir í RA:TIO fengu viðurkenningu í flokknum, „Sveitir sem þú ættir að fylgjast með“ (e. one to watch) en þeir hafa átt farsælt samstarf með landsfrægum popplistamönnum eins og GDRN, nýstirninu Unu Schram og partýsveitinni ClubDub.  

Að lokum var hvatningaverðlaunum Reykjavík Grapevine (e. Shout out) deilt á milli tónlistarundursins Halldórs Eldjárn sem fangaði tungllendinguna í tónlistarformi, og listahópsins Post-dreifingu sem annaðist umgjörð tónlistarhátíðarinnar „Hátíðni“ síðasta sumar.

Alls fengu níu listamenn verðlaun hjá tímaritinu í átta flokkum en í dómnefnd voru Sigtryggur Baldursson, tónlistarmaður og framkvæmdastjóri ÚTÓN, Anna Gyða Sigurgísladóttir útvarpskona á RÚV, Geoffrey Huntington-Williams, einn af eigendum Priksins og stofnendum plötuútgáfunnar Sticky, Maria-Carmela Raso tónlistarhaldari og listamaður auk menningarblaðamanna Reykjavík Grapevine, Hannah Jane Cohen og Alexander Jean Edvard Le Sage De Fontenay.

Verðlaunin verða afhent formlega 17. janúar á Röntgen klukkan 21.


Tengdar fréttir

Sigurganga Hildar heldur áfram

Hildur Guðnadóttir hreppti tvenn stór verðlaun á verðlaunahátíð Samtaka tónskálda og textahöfunda í Los Angeles, sem fram fóru á þriðjudag.

Hildur tilnefnd til Bafta verðlauna

Hildur Guðnadóttir sellóleikari og tónskáld heldur áfram að slá í gegn á erlendum vettvangi en í dag var hún tilnefnd til hinna virtu bresku kvikmynda- og sjónvarpsþáttaakademíunnar BAFTA fyrir tónlist sína í Jókernum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×