Íslenski boltinn

Kristján Gauti tekur fram skóna og spilar með FH

Anton Ingi Leifsson skrifar
Kristján Gauti Emilsson í leik með FH.
Kristján Gauti Emilsson í leik með FH. Vísir/Arnþór

Kristján Gauti Emilsson hefur tekið fram skóna og samið við FH en hann hætti í fótbolta árið 2016.

Kristján Gauti, sem er fæddur árið 1993, var afar efnilegur á sínum yngri árum og sautján ára samndi hann meðal annars við Liverpool.

Hann var hjá félaginu þangað til í júlí 2012 er hann snéri aftur heim í uppeldisfélagið, FH.

Eftir tvö ár í FH hélt Kristján Gauti aftur erlendis en hann samdi við NEC Nijmegen í júlí 2014. Hann hætti svo í janúar 2016 og hefur ekki skilað fótbolta síðan þá.

Kristján Gauti var fyrr í vikunni orðaður við Stjörnuna en nú hefur hann gengið í raðir uppeldisfélagsins. Hann hefur skorað tíu mörk í 49 leikjum hér á landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×