Opnunarhátið Hinsegin daga fer fram í kvöld Randver Kári Randversson skrifar 7. ágúst 2014 10:40 Hinsegin Kórinn kemur fram í Hörpu í kvöld.
Hinsegin dagar eru nú í fullum gangi í Reykjavík. Í kvöld fer fram opnunarhátíð Hinsegin í Hörpu. Húsið opnar klukkan 20:30 en dagskrá hefst stundvíslega klukkan 21. Í fréttatilkynningu segir að í ár stígi stórskotalið listamanna á svið og þar megi nefna Pál Óskar, Siggu Beinteins, Hafstein Þórólfsson, Hinsegin kórinn og fleiri. Í ár kemur skemmtikrafturinn vinsæli Willam úr RuPaul‘s Drag Rrace sérstaklega hingað til lands til að skemmta á opnunarhátíð Hinsegin daga. Miðasala á opnunarhátíðina er enn í fullum gangi í Kaupfélagi Hinsegin daga að Suðurgötu 3 og á www.harpa.is. Í dag verður dagskráin fjölbreytt og skemmtileg en fyrri part dags verður umræða og fræðsla í fyrirrúmi. Í hádeginu standa Hinsegin dagar fyrir umræðufundinum Nekt, kynlíf og önnur tabú þar sem fjölmörgum áleitnum, en mikilvægum spurningum verður velt upp. Fundurinn hefst klukkan 12. Á sama stað klukkan 17 mun Kitty Anderson stofnandi Intersex Ísland halda fyrirlestur um reynslu sína af því að lifa sem Intersex einstaklingur á Íslandi. Kitty hélt afar áhrifaríka ræðu í lok sýningar heimildarmyndarinnar Intersexion í Bíó Paradís síðastliðið þriðjudagskvöld áður en hún svaraði spurningum áhorfenda. Í gær fór fram vel sótt hinsegin leiðsögn um Grasagarð Reykjavíkur en um kvöldið breyttist Sundhöll Reykjavíkur í tónleikahöll þegar tónleikarnir Dívur og dýfur fór þar fram. Þau Felix Bergsson, Helga Möller, Elín Ey og Josefin Winther stigu á stokk á meðan sundkappar úr Íþróttafélaginu Styrmi sýndu dýfingalistir sínar af brettinu.
Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum Innlent Fleiri fréttir Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Sjálfkjörið á Vopnafirði Logi tekur undir mótmæli gegn þátttöku Rússa á Feneyjatvíæringnum Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Sjá meira