„Náungarnir ganga hérna um svo uppdópaðir að augun á þeim standa út“ Samúel Karl Ólason skrifar 7. ágúst 2014 14:00 Vísir/Pjetur/AFP
Íbúar í Fjallabyggð eru margir hverjir orðnir dauðþreyttir og áhyggjufullir yfir því sem þeir telja vera aukin fíkniefnaumsvif í sveitarfélaginu. Bæjarstjórinn í Fjallabyggð hefur tekið málið upp og rætt við lögregluyfirvöld norðan heiða. Málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs þann 5. ágúst. Í fundargerðinni kemur fram að bæjarráð Fjallabyggðar vilji að ráðist verði í átak gegn fíkniefnasölu í bæjarfélaginu og að þar verði ekki „griðarstaður fyrir fíkniefnasala“. Þá hvetur bæjarráð foreldra til að sýna aðgæslu hvað þessi mál varðar.Meinsemd í okkar þjóðfélagi „Menn hafa miklar áhyggjur af þessum málum. Þetta virðist vera að spretta upp í öllum samfélögum og við viljum koma þeim skilaboðum til foreldra að þau gæti vel að,“ segir Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri í Fjallabyggð, í samtali við Vísi. Sigurður Valur fundaði með Daníel Guðjónssyni, yfirlögregluþjóni á Akureyri, vegna málsins. „Við vorum að óska eftir því við lögregluyfirvöld að þau gerðu átak í því, að ef þetta væri til staðar hjá okkur þyrftir að taka á því strax.“ „Um þetta snýst málið og það þarf ekkert að ræða það undir rós. Þetta er meinsemd í okkar þjóðfélagi og við þurfum að taka á þessu,“ segir Sigurður. Íbúi Fjallabyggðar sem hafði samband við Vísi segir málið snúast um hóp einstaklinga sem hafi komið sér fyrir í bæjarfélaginu. Foreldrar hafi áhyggjur af börnum sínum og fólk sé byrjað að læsa bílum sínum og húsum. Áður fyrr hafi þess ekki þurft en nú sé fólk hrætt. „Náungarnir ganga hérna um svo uppdópaðir að augun á þeim standa út,“ segir íbúinn, sem vildi ekki láta nafns síns getið.Einstaklingar sem lögreglan þekkir til „Við höfum fengið kvartanir frá íbúum yfir ákveðnum einstaklingum á svæðinu. Við munum koma til með að skoða það. Bæði í víðara samhengi og þrengra,“ segir Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri. Hann segir að lögreglan muni taka málið til skoðunar og bregðast við í samræmi við hvað komi úr þeirri skoðun. „Á þessu svæði er fólk sem hefur áður komið við sögu lögreglu og við þekkjum til,“ segir Daníel. Hann veltir fyrir sér hvort fíkniefnasala á svæðinu sé að vinda upp á sig og verða sýnilegri en áður. „Það kemur í ljós. Við tökum þessar ábendingar til skoðunar sem og áhyggjur bæjarráðs. Við tökum þessu alvarlega og munum bregðast við í samræmi við það.“
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira