Tilkynningum um kynferðisbrot fækkar Randver Kári Randversson skrifar 7. ágúst 2014 16:46 Tilkynningum til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um kynferðisbrot hefur fækkað um 41% samanborið við sama tímabil síðustu þriggja ára. Vísir/Róbert
8 kynferðisbrot voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í júlí, sem er fækkun á milli mánaða. Tilkynningum um slík brot hefur fækkað um 41% samanborið við sama tímabil síðustu þriggja ára. Þá hefur fíkniefnabrotum fjölgað um 44% samanborið við sama tímabil síðustu þriggja ára, en 122 fíkniefnabrot voru í júlí. Þetta kemur fram í skýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu þar sem eru teknar saman upplýsingar um helstu afbrot sem hafa verið tilkynnt til lögreglu. Í skýrslunni kemur einnig fram að 593 hegningarlagabrot hafi verið skráð hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í júlí og hefur þeim fækkað um 13% samanborið við sama tímabil síðustu þriggja ára. 294 tilkynningar um þjófnaði voru skráðar í júlí, sem er fækkun um 17% samanborið við sama tímabil síðustu þriggja ára. Alls bárust Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu 78 tilkynningar um innbrot í júlí. Tilkynnt innbrot eru þó um 23% færri það sem af er ári miðað við sama tímabil síðustu þriggja ára. 1309 umferðarlagabrot voru skráð í júlí, en það er fækkun á milli mánaða. Brotunum fjölgaði um 15% samanborið við sama tímabil síðustu þriggja ára. Þá voru 63 ofbeldisbrot skráð í júlí, sem er fjölgun um 11% miðað við sama tímabil síðustu þriggja ára. Tilvikum þar sem lögreglumenn hafa verið beittir ofbeldi fjölgaði nokkuð í júlí. Alls voru skráð átta slík tilvik í mánuðinum sem er nokkur aukning miðað við meðaltal síðustu 12 mánaða. Tilkynningar um eignaspjöll voru 108, og fækkaði þeim um 10% samanborið við sama tímabil síðustu þriggja ára.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira