Vilja lögin tafarlaust felld úr gildi 3. júní 2011 18:01 Andrea Jóhanna Ólafsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna Mynd/ GVA
Hagsmunasamtök heimilanna skora á Alþingi að nema breytingu á lögum um vexti og verðtryggingu, sem var staðfest á Alþingi undir lok síðasta árs, úr gildi tafarlaust, þar sem á lögunum séu alvarlegir meinbugir. Samtökin hafa nú sent kvörtun til Eftirlitsstofnunar EFTA en þau telja að álits stofnunarinnar hefði átt að leita áður en lögin voru samþykkt. Að sögn Andreu Jóhönnu Ólafsdóttur, formanns samtakanna, eru lögin vafasöm á marga vegu. Meðal annars sé afturvirkum innheimtuaðgerðum beitt á kostnað lántakenda en vextir á lánum sem fengin voru í gildistíð eldri laga séu nú endurreiknaðir eftir reglum nýju laganna. Þá sé farið eftir upphaflegri lánsfjárhæð, þó svo hluti lánsins sé þegar greiddur. Auk þess brjóti lögin í bága við aðrar meginreglur kröfuréttar, neytendaverndar og jafnvel Stjórnarskrár. Lögin kveður hún einnig vera afar óskýr. Hún segir það undirstrikast af þeirri staðreynd að lagastofnanir Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík hafi hvorug séð sér fært að veita álit um rétta túlkun laganna. Aðspurð hvernig Hagsmunasamtök heimilanna vilji sjá lögunum breytt bendir hún á að þó svo gengistryggingin hafi verið dæmd ólögleg þýði það ekki að vaxtaákvæði samninganna geti ekki staðið óbreytt. Mikilvægast sé þó að núgildandi lög séu felld niður og ný séu samin sem samræmist öðrum reglum réttarkerfisins og evróputilskipana. Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, tekur heils hugar undir áskorun Hagsmunasamtaka heimilanna en hún hefur þegar lagt fram frumvarp um afnám laganna sem enn bíður eftir að komast á dagskrá þingsins.
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Fleiri fréttir „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar Sjá meira