Innlent

Lendingakeppni við Hafravatn

Svifflugfélag Reykjavíkur stendur fyrir svokallaðri svifflugslendingakeppni við Hafravatn í dag. Mótið hófst klukkan tvö og stendur eitthvað fram eftir degi og því um að gera fyrir þá íbúa höfuðborgarsvæðisins sem vilja bregða sér út fyrir bæjarmörkin í veðurblíðunni að renna við hjá Hafravatni til að sjá flugmennina leika listir sínar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×