Innlent

Skorrdælingar höfnuðu sameiningu

"Þessi niðurstaða kom í raun ekki óvart enda því sem næsta óbreytt frá fyrri kosningu," segir Sveinbjörn Eyjólfsson, formaður sameiningarnefndar sveitarfélaga í Borgarfirði. Skorrdælingar höfnuðu aftur sameiningu við hin sveitarfélögin Borgarfirði með sama atkvæðafjölda og í síðustu kosningu, 26 á móti en 17 fylgjandi. Sveinbjörn segir að þá sé þetta loks út af borðinu og sameiningarnefndin þurfi ekki lengur að taka tillit til Skorrdælinga. "Nú geta hinar sveitirnar komið sér saman um sína framtíð og nú fer í hönd meiri vinna vegna þess sem framundan er enda nóg eftir ennþá."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×