Innlent

50% kvenna deyr úr hjartasjúkdómum

Tæplega helmingur allra kvenna í löndum Evrópusambandsins deyr úr hjartasjúkdómum. Fleiri konur deyja úr hjartasjúkdómum en krabbameini á ári hverju. Rannsóknir hafa þó leitt í ljós að mjög lágt hlutfall kvenna er meðvitað um hættuna á hjartasjúkdómum. Það er afar útbreiddur misskilningur að hjarta- og æðasjúkdómar séu karlasjúkdómar en hann stafar að stórum hluta að því að sá áróður og þær herferðir sem ráðist hefur verið í beinist fyrst og fremst að körlum. Blaðið Velferð, sem samtökin Hjartaheill senda til allra kvenna á aldrinum 40-45 ára á mánudag, birtir ítarlega umfjöllun um hjartasjúkdóma kvenna. Þar kemur fram að þrátt fyrir að konur séu stærri áhættuhópur vegna hjartasjúkdóma en karlar er fátítt að læknar nefni að fyrra bragði hjart- og æðasjúkdóma við kvenkyns sjúklinga sína. Í blaðinu er greint frá því hversu ólíkar konur eru körlum þegar kemur að einkennum hjartasjúkdóma og vitnað í Evrópsku hjartasamtökin sem hafa varað sterklega við því að yfirfæra niðurstöður rannsókna á körlum yfir á konur. Vitnað er í skýrslu sem var unnin undir handleiðslu níu sérfræðinga frá Evrópu og Bandaríkjunum. Þar er bent á að hormónið estrógen verndar konur fyrir þessum sjúkdómu fyrir breytingarskeiðið og af þessum sökum kemur sjúkdómurinn um tíu árum síðar fram hjá konum en körlum. Þetta er ekki algilt og sjúkdómurinn getur komið fram fyrir breytingarskeiðið. Kona sem fær hjartablæðingu er einnig í meiri hættu að deyja en karl og meiri líkur eru á endurteknum hjartaáföllum sem leiða til örorku. Þá þekkja allir lýsingar á nístandi sársauka í brjóstholi og út í handlegg sem er einkenni hjartaáfalls- eða kransæðastíflu. Þetta þarf ekki endilega að eiga við um konur. Þær upplifa oft þess í stað gríðarlega þreytu í allt að mánuð áður en áfallið ríður yfir. Reyndar komast brjóstverkir ekki á blað þegar kemur að þeim einkennum sem konur upplifa helst sem undanfara hjartaáfalls. Þreytan er þar efst á blaði, svo og svefntruflanir, mæði, meltingartruflanir, kvíði, ör hjartsláttur og máttlitlir handleggir. Áhættuþættir eru þekktir hjá konum jafnt sem körlum. Hátt hlutfall kólesteróls í blóði, reykingar, offita og lélegt líkamlegt form eru þar efst á blaði. Kona sem reykir býr hins vegar við tvöfalt meiri hættu á hjartaáfalli en „reykingakarl“. Þá er talið að kona sem vinnur úti og hugsar um heimili búi við tvöfalt meiri streitu en makinn. Streita eykur aftur á móti líkurnar á hjartasjúkdómum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×