Fréttaskýring: Stjórnarflokkarnir langt frá meirihluta 8. apríl 2011 08:30 Stuðningur við Sjálfstæðisflokkinn og Vinstri græna eykst en Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn tapa fylgi samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins. Stjórnarflokkarnir eru samanlagt með 42,5 prósenta fylgi og 28 þingmenn. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Hvernig hefur fylgi stjórnmálaflokkanna þróast samkvæmt könnunum Fréttablaðsins? Stjórnarflokkarnir eru samanlagt með stuðning 42,5 prósenta kjósenda og fengju samtals 28 þingmenn af 63 samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Stjórnin myndi samkvæmt þessu falla yrði kosið nú. Alls tóku 54,5 prósent afstöðu til spurningar um fylgi flokka í könnuninni. Um 15 prósent þeirra sem hringt var í sögðust óviss um hvaða flokk þau myndu kjósa yrði gengið til þingkosninga nú. Tæplega 18 prósent sögðust myndu sitja heima eða skila auðu og 11 prósent kusu að svara ekki spurningunni. Sjálfstæðisflokkurinn mælist sem fyrr með mestan stuðning. Um 44 prósent þeirra sem afstöðu tóku í könnuninni myndu kjósa flokkinn yrði gengið til kosninga nú. Stuðningur við flokkinn hefur aukist um 2,8 prósentustig frá síðustu könnun Fréttablaðsins, sem gerð var 24. febrúar síðastliðinn. Þetta er langt yfir 23,7 prósenta kjörfylgi flokksins. Yrðu þetta niðurstöður kosninga fengi flokkurinn 29 þingmenn, en fékk 16 í þingkosningunum 2009. Samfylkingin fengi samkvæmt skoðanakönnuninni stuðning 24,8 prósenta landsmanna yrði gengið til kosninga nú. Það er 1,2 prósentum yfir fylgi flokksins í könnun Fréttablaðsins í febrúar, en talsvert undir 29,8 prósenta kjörfylgi. Fengi flokkurinn þennan stuðning í kosningum yrðu þingmenn flokksins 16 talsins, en í síðustu kosningum fékk Samfylkingin 20 þingmenn kjörna. Vinstri græn njóta nú stuðnings 17,7 prósenta landsmanna samkvæmt könnun Fréttablaðsins. Fylgi flokksins hefur aukist um tvö prósentustig frá síðustu könnun, en er enn talsvert undir 21,7 prósenta kjörfylgi flokksins. Vinstri græn fengju samkvæmt þessu 12 þingmenn, en flokkurinn fékk 14 í síðustu kosningum. Framsóknarflokkurinn tapar fylgi milli kannana Fréttablaðsins. Um 9,4 prósent styðja flokkinn samkvæmt könnuninni. Það eru um 2,3 prósentustigum færri en samkvæmt könnun Fréttablaðsins í febrúar. Framsóknarflokkurinn fékk 14,8 prósenta fylgi í síðustu kosningum. Samkvæmt könnun Fréttablaðsins fengi Framsóknarflokkurinn sex þingmenn yrði gengið til kosninga nú, en fékk níu í síðustu kosningum. Hreyfingin nýtur stuðnings 4,1 prósents þeirra sem afstöðu taka í könnun Fréttablaðsins, sem er lítilleg aukning frá síðustu könnun. Flokkurinn bauð ekki fram í síðustu kosningum, en varð til með klofningi Borgarahreyfingarinnar. Flokkurinn er því með þrjá þingmenn í dag, en næði engum manni á þing yrðu niðurstöður kosninga í takt við könnun Fréttablaðsins. Hringt var í 800 manns dagana 5. og 6. apríl. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá og skiptust jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til kosninga í dag? Ef ekki fékkst svar var spurt: Hvaða flokk er líklegast að þú myndir kjósa? Ef ekki fékkst svar var að lokum spurt: Er líklegra að þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern annan flokk? Alls tóku 54,5 prósent afstöðu. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Innlent Steinþór sýknaður í Hæstarétti Innlent Einar horfir til hægri Innlent Loka bandaríska sendiráðinu í Ísrael Erlent Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Innlent Árásum á Teheran fjölgar og enn einn hershöfðinginn felldur Erlent Ný könnun Gallup: Samfylkingin bætir við sig og Framsókn þurrkast út Innlent Íranir hóta „óbætanlegu tjóni“ skerist Bandaríkin í leikinn Erlent Geðhjálp ekki á framfæri hins opinbera Innlent Harmar ákvörðun Guðmundar Innlent Fleiri fréttir „Engin virðing borin fyrir því að þarna undir eru verðmæti og störf fólks“ Vesturbæjarlaug lokuð í þrjár vikur til viðbótar Bóndi spurði eftirlitsmann MAST hvort hann ætti að skjóta hann Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hefst í dag Björguðu stjórnvana bát í Faxaflóa Steinþór sýknaður í Hæstarétti Ósk um að heita Óskir hafnað Einar horfir til hægri Harmar ákvörðun Guðmundar Enn þrefað á þingi og árásir ganga á víxl í miðausturlöndum Heyr, heyr-ið í þingsal veldur Snorra hugarangri Geðhjálp ekki á framfæri hins opinbera Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Ný könnun Gallup: Samfylkingin bætir við sig og Framsókn þurrkast út Leituðu Sigríðar í Elliðaárdal Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Ný og glæsileg heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ Segir stefna í menningarslys á Birkimel Kröfur Bandaríkjaforseta, „lágkúruleg“ blokk og hátíðarhöld Skjálfti fannst í Hveragerði Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Veðrið setti strik í reikninginn en Lóa öðlast framhaldslíf Einn af hverjum fjórum er erlendur ríkisborgari í atvinnulífinu Hefur leit að nýjum saksóknara Ræða Höllu: Facebookfrí, staða drengja og hatrömm heift Ráðherra um afsögn Helga Magnúsar og hátíðahöld um land allt Katrín Halldóra er fjallkonan í ár Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Flugfélög með áratuga sögu horfin af markaði Ótækt að íþróttafélögin selji áfengi án leyfis Sjá meira